Útgjaldaaukningin til spítalareksturs miklu minni heldur en Landspítalinn hefur metið nauðsynlega

Mikil upp­bygg­ing framundan í heil­brigð­is­málum en yfir­lýstri fjár­þörf Land­spít­al­ans ekki mætt.

Útgjaldaaukningin til spítalareksturs miklu minni heldur en Landspítalinn hefur metið nauðsynlega

Útgjöld vegna rekst­urs Land­spít­al­ans sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2019 verða miklu lægri heldur en stjórn­endur spít­al­ans hafa lýst yfir að þurfi til að tryggja rekstr­ar­grund­völl spít­al­ans og bregð­ast við upp­söfn­uðum vanda und­an­far­inna ára. 

Land­spít­al­inn fær við­bót­ar­fjár­veit­ingu vegna reikn­aðs raun­vaxtar í veittri þjón­ustu upp á 1,1 millj­arð. Rekstr­ar­um­fang fjár­magnað með sér­tekjum hækkar um 638,8 millj­ónir og 840 millj­óna fjár­veit­ing vegna biðlista­að­gerða verður gerð var­an­leg. 250 millj­ónum verður bætt inn til að styrkja mönnun og bæta fram­leiðni og 200 millj­ónum til að efla göngu­deild­ar­þjón­ustu. Á móti kemur útgjalda­lækkun um 335,5 millj­ónir króna „í sam­ræmi við stefnu ríkis­stjórnar­innar um aðhald í útgjöldum ríkis­sjóðs“. 

Alls eru Land­spít­al­anum ætluð rekstr­ar­fram­lög upp á 69 millj­arða árið 2019, rúm­lega 4,6 millj­örðum meira en í fyrra. Ofan á þetta bæt­ist óskipt fram­lag rík­is­sjóðs til rekst­urs sjúkra­húsa, það er Land­spít­al­ans og Sjúkra­húss­ins á Akureyri, upp á 2,3 millj­arða, 100 millj­ónum hærra en sam­kvæmt fjár­lögum yfir­stand­andi árs. 

Stjórnendur spítalans töldu 5,4
milljarða viðbót „algjört lágmark“

Þegar stjórn­endur Land­spít­al­ans veittu umsögn um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í fyrra mátu þeir fjár­þörf spít­al­ans og komust að þeirri nið­ur­stöðu að auka þyrfti rekstr­ar­fram­lög um minnst 10 millj­arða króna árið 2019 til að tryggja rekstr­ar­grund­völl­inn og mæta þeim áskor­unum sem framundan eru. Slík við­bót væri nauð­syn­leg til styrkja mönnun, göngu­deildir og vís­inda­starf­semi, stytta bið eftir þjón­ustu og bregð­ast við ábend­ingum eft­ir­lits­að­ila um það sem betur mætti fara í starf­semi spít­al­ans. 

Fram kom að af þessum 10 millj­örðum væru 5,4 millj­arðar „algjört lág­mark til að mæta fjár­þörf í núver­andi rekstri, halda í við eft­ir­spurn­ar­aukn­ingu til árs­ins 2019, styrkja vís­inda­starf (sem lið í að tryggja mönnun) og bregð­ast við ábend­ingum eft­ir­lits­að­ila um gæða- og örygg­is­mál“. Ljóst er að fyr­ir­huguð útgjalda­aukn­ing rík­is­stjórn­ar­innar vegna spít­ala­rekst­urs á næsta ári mun ekki dekka þessa fjár­þörf. 

Alls var við­bót­ar­fjár­þörf vegna rekst­urs, tækja­kaupa og fjár­fest­inga í núver­andi hús­næði spít­al­ans – það er þegar litið er fram hjá kostn­aði vegna fram­kvæmda og bygg­ingar nýs sjúkra­húss á Land­spít­ala­lóð­inni – metin á sam­tals 12,5 millj­arða miðað við fjár­lög yfir­stand­andi árs.

Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árið 2019 mun heild­ar­út­gjalda­aukn­ingin til Land­spít­al­ans ekki einu sinni ná helm­ingnum af þess­ari upp­hæð. 

Talsverð útgjaldaaukning og uppbygging framundan

Ýmiss konar upp­bygg­ing er þó framundan á sviði heil­brigð­is­mála. Munu fram­lög til mála­flokks­ins aukast um alls 12,6 millj­arða króna að frá­töldum launa- og verð­lags­hækk­unum.

Gert er ráð fyrir auknum fram­lögum upp á 4,5 millj­arða til að hraða upp­bygg­ingnu Land­spít­al­ans við Hring­braut. Fram­kvæmdir við nýjan með­ferð­ar­kjarna sjúkra­húss­ins hefj­ast í haust og fulln­að­ar­hönnun rann­sókna­húss á næsta ári. Þá verður nýtt sjúkra­hótel tekið í notkun en árlegur rekstr­ar­kostn­aður þess er áætl­aður rúmar 400 millj­ónir.  

Geð­heil­brigð­is­þjón­usta á lands­vísu innan heilsu­gæsl­unnar verður efld með 650 millj­óna króna fram­lagi til að fjölga geð­heilsuteymum og fjölga stöðu­gildum sál­fræð­inga. Framlög til heilsu­gæslu­þjón­ustu aukast um 200 millj­ónir og fram­lög til heima­hjúkr­unar um 100 millj­ónir. Þá verður 70 millj­ónum varið í skimun fyrir krabba­meini í ristli og enda­þarmi. Dregið verður úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga með 400 millj­óna við­bót­ar­fram­lagi auk þess sem 500 millj­ónir króna bæt­ast við vegna nýs ramma­samn­ings um tann­lækn­ingar aldr­aðra og öryrkja. 

Í fjár­lögum þessa árs voru veittar 400 millj­ónir króna til að styrkja rekstr­ar­grund­völl heil­brigð­is­stofn­ana á lands­byggð­inni. Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2019 er miðað við að rekstr­ar­grund­völlur þeirra verði styrktur var­an­lega með föstu fram­lagi sem þessu nemur. Þá munu fram­lög til fram­kvæmda­á­ætl­unar um upp­bygg­ingu hjúkr­un­ar­rýma aukast um 440 millj­ónir króna og 100 millj­ónum króna verður varið til að fjölga dagdval­ar­rýmum.

Aukin fram­lög til rekst­urs til að mæta fjölgun hjúkr­un­ar­rýma eru áætluð rúmur einn millj­arður króna en tekin verða í notkun 99 hjúkr­un­ar­rými við Sléttu­veg í Reykja­vík og 40 rými á nýju heim­ili á Sel­tjarn­ar­nesi.

Þriggja ára átaks­verk­efni um stytt­ingu biðlista vegna til­tek­inna aðgerða lýkur á þessu ári. Árleg fram­lög vegna þess hafa verið 840 millj­ónir króna. Með fjár­laga­frum­varp­inu er gert ráð fyrir að fjár­hæð sem þessu nemur verði fram­vegis fastur liður á fjár­lögum, þannig að aukn­ing fjár­muna til að vinna á löngum biðlistum sé var­an­leg.

Framlög til inn­leið­ingar nýrra S-merktra lyfja verða aukin um 200 millj­ónir króna. Þá verður 50 millj­ónum króna varið til að koma á fót neyslu­rými í Reykja­vík fyrir ein­stak­linga sem nota vímu­efni í æð þar sem þeir geta átt skjól og aðgang að hreinum nála­skipta­bún­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjárframlög til Landspítalans

Ráðherra vill að Landspítalinn hagræði meira - Spítalinn leiðréttir fullyrðingar um „stóraukin útgjöld“
Fréttir

Ráðherra vill að Land­spít­al­inn hag­ræði meira - Spít­al­inn leið­réttir full­yrð­ingar um „stór­aukin útgjöld“

Að sögn Land­spít­al­ans not­að­ist Þor­steinn Víglunds­son félags­mála­ráð­herra við rangar tölur í við­tali við Morg­un­blaðið, þar sem hann lýsti stór­auknum fjár­fram­lögum til spít­al­ans. Ráð­herr­ann segir að gera verði kröfur til stjórn­enda spít­al­ans, eins og stjórn­mála­manna, og segir þá þurfa að hag­ræða.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár