8,3 pró­sent til heil­brigð­is­mála Undir lok kjör­tíma­bils­ins er gert ráð fyrir að hlut­fall heil­brigðis­út­gjalda af vergri lands­fram­leiðslu verði hærra en nokkur dæmi eru um á þess­ari öld. Mynd: Alþingi

Naumt skammtað til spítalareksturs en horfið frá óraunsæi fyrri stjórnar

Útgjalda­aukn­ing rík­is­stjórn­ar­innar til heil­brigð­is­mála rennur að mestu til fjár­fest­inga og fram­kvæmda en rekstur sjúkra­hús­þjón­ustu verður lík­lega áfram í járnum þegar tekið er til­lit til mann­fjölda­þró­unar, öldr­unar og aðsóknar ferða­manna.

Útgjöld til heil­brigð­is­mála munu vaxa um 25,7 pró­sent að raun­virði á kjör­tíma­bili rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur ef fjár­mála­á­ætlun Bjarna Bene­dikts­sonar gengur eftir. Hlutfall heil­brigðis­út­gjalda af vergri lands­fram­leiðslu verður þannig um 8,3 pró­sent á síð­asta fjár­laga­ári rík­is­stjórn­ar­innar árið 2021, hærra en nokkur dæmi eru um á þess­ari öld, en nokkru lægra en 86 þús­und lands­manna köll­uðu eftir þegar Kári Stef­áns­son setti af stað und­ir­skrifta­söfnun um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins árið 2016 og krafð­ist 11 pró­senta af vergri lands­fram­leiðslu til mála­flokks­ins.

Útgjöld til spítalareksturs dragast saman

Framlög rík­is­ins til sjúkra­hús­þjón­ustu námu 85,6 millj­örðum árið 2017 en verða 110,3 millj­arðar árið 2021 eða tæp­lega 25 millj­örðum hærri.

Af þessum 25 millj­örðum rennur megnið til fjár­fest­inga, meðal ann­ars bygg­ing­ar­fram­kvæmda við Hring­braut sem verða umfangs­mestar árið 2021.

Áætluð fram­lög til fjár­fest­inga vegna sjúkra­hús­þjón­ustu aukast um 16 millj­arða en á sama tíma hækka rekstrar- og til­færslu­gjöld um aðeins 8,6 millj­arða.

Sú hækkun skipt­ist milli Land­spít­al­ans, Sjúkra­húss­ins á Akureyri, heil­brigð­is­stofn­ana í heil­brigð­is­um­dæmum og erlendrar sjúka­hús­þjón­ustu, en hluti aukn­ing­ar­innar fer í sér­stakt átak um stytt­ingu biðlista eftir til­teknum aðgerðum. 

Heil­brigð­is­inn­viðir styrktirÚtgjöld til heil­brigð­is­mála munu aukast tals­vert í fjár­mála­ráð­herra­tíð Bjarna Bene­dikts­sonar ef áætlun hans gengur eftir.

Þegar tekið er mið af mann­fjölda­þróun og breyttrar ald­urs­sam­setn­ingar þjóð­ar­innar verður að telj­ast ólík­legt að þessi aukn­ing dugi til að halda í við eft­ir­spurn eftir heil­brigð­is­þjón­ustu á spít­ölum og öðrum heil­brigð­is­stofn­unum. 

Allt í allt munu útgjöld til rekst­urs sjúkra­hús­þjón­ustu, deilt niður á fjölda Íslend­inga miðað við áætl­aða mann­fjölda­þróun, drag­ast saman frá 2018 til 2021.

Ofan á þetta bæt­ist að ferða­manna­straum­ur­inn mun halda áfram að valda álagi á heil­brigð­is­stofn­anir. Því má búast við háværri gagn­rýni frá for­stöðu­mönnum spít­al­anna við fram­lagn­ingu næstu fjár­laga­frum­varpa. 

Dregið úr kostnaði sjúklinga um tæpa 2 milljarða á ári

Allt í allt hækka fram­lög til sjúkra­húsa­mála um 28,7 pró­sent frá 2017 til 2021, en aukn­ingin til heil­brigð­is­þjón­ustu utan sjúkra­húsa, meðal ann­ars hjá sér­fræði­læknum og á heilsu­gæslu­stöðvum, verður 23,6 pró­sent á sama tíma­bili. Út frá þessu virð­ist sem stefnt sé að því að byggja upp opin­bera kerfið í rík­ara mæli en hið einka­rekna.

Ef ein­ungis er litið til rekstr­ar­út­gjalda er hins vegar ljóst að fram­lög vegna heil­brigð­is­þjón­ustu utan sjúkra­húsa aukast um tvö­falt meira en til rekstrar og þjón­ustu á spít­ölum. 

Útgjöld vegna rekst­urs spít­al­anna aukast um 10,4 pró­sent á kjör­tíma­bil­inu meðan rekstr­ar­gjöld vegna heil­brigð­is­þjón­ustu utan sjúkra­húsa aukast tvö­falt meira, um 23,6 pró­sent. Hluti af þeirri aukn­ingu rennur til lækk­unar á greiðslu­þátt­töku sjúk­linga, en ráð­gert er að veita sam­tals 8,5 millj­arða til þess á tíma­bil­inu sem fjár­mála­á­ætl­unin tekur til, þ.e. frá 2019 til 2023, eða að með­al­tali 1,7 millj­arða á ári. 

Fram kemur í grein­ar­gerð áætl­un­ar­innar að stefnt sé að því að hlut­deild sjúk­linga hér­lendis verði sam­bæri­leg því sem ger­ist á Norð­ur­lönd­unum. Þannig verði hlut­fall heim­ila af heild­ar­heil­brigðis­kostn­aði sam­kvæmt sam­ræmdu við­miði OECD komið 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár