Þó stærstur hluti jarðnæðis á Íslandi sé í eigu íslenskra bænda, ríkis, kirkna og sveitarfélaga er þó verulegur hluti í eigu stórefnafólks sem, í sumum tilfellum, hefur safnað að sér fjölda jarða að hluta eða í heild. Þá hafa erlendir auðmenn keypt upp jarðir á ákveðnum stöðum á landinu, ýmist einir eða með viðskiptafélögum sínum.
Lang stórtækastur í þeim efnum er breski auðkýfingurinn James Ratcliffe, sem talsvert hefur verið fjallað um í fjölmiðlum, meðal annars í Stundinni. Ratcliffe og viðskiptafélagi hans, Jóhannes Kristinsson, sem var lengi kenndur við Fons og Iceland Express, eiga saman hátt í fjörutíu jarðir að hluta eða heild og eru þær allar á Norður-, Norðaustur- og Austurlandi. Erfitt er að ná að fullu utan um hvert eignarhald þeirra jarða er sökum þess að þeir Ratcliffe og Jóhannes eru ekki skráðir eigendur þeirra heldur ýmis félög í þeirra eigu. …
Athugasemdir