Stofna félög vegna umskipunarhafnar í Finnafirði

Sveit­ar­fé­lög og fram­kvæmda­að­ilar taka nú skref í áfram­hald­andi þróun umskip­un­ar­hafnar í Finna­firði, í nágrenni við svæði þar sem breskur auð­maður sankar að sér jörðum. Höfnin mundi þjón­usta sjó­flutn­inga á Norð­ur­slóðum og olíu- og gas­iðnað, en land­eig­endur eru mis­á­nægðir. Sveit­ar­stjóri segir ekk­ert benda til þess að auð­menn sem keypt hafa upp nálægar jarðir teng­ist verk­efn­inu.

Fyrirhugað iðnaðarsvæði í Finnafirði
Fyr­ir­hugað iðn­að­ar­svæði í Finna­firði Gunn­ólfs­vík er í eigu rík­is­ins, en suð­ur­hluti hafn­ar­innar er á landi í eigu fólks sem tengt er Jóhann­esi Krist­ins­syni stór­eigna­manni á svæð­inu. Mynd: EFLA

Unnið er að stofnun félaga í eigu fram­kvæmda­að­ila og sveit­ar­fé­laga vegna upp­bygg­ingar umskip­un­ar­hafnar í Finna­firði á Norð­aust­ur­landi. Lang­tíma­mark­miðið er þjón­usta við skipa­flutn­inga á Norð­ur­slóðum og olíu- og gas­iðnað í Norður-Atl­ants­hafi. Verk­fræð­ingur segir svæðið ein­stakt vegna mik­ils und­ir­lendis sem megi nota undir hafn­sækna starf­semi, en rík­asti maður Bret­lands, James Ratcliffe, og Jóhannes Krist­ins­son, kenndur við Fons, eiga stóran hluta lands í nágrenni fjarð­ar­ins og hafn­ar­stæð­is­ins.

„Það var sam­þykkt að stofna félög til að halda utan um verk­efnið til þess að gera þetta sam­starf betur inn­ram­mað og skil­virkara,“ segir Elías Pét­urs­son, sveit­ar­stjóri Langa­nes­byggðar. „Það eru ofboðs­lega mörg „ef“ í þessu ennþá. Það er var­kár vel­vilji og stuðn­ingur við verk­efnið á svæð­inu. Að sjálf­sögðu eru ein­hverjir sem hafa meiri efa­semdir en aðrir og það er hið besta mál. Mér finnst vera mjög skyn­sam­legt við­horf gagn­vart þessu. Það er eng­inn æsingur og eng­inn með doll­ara­merki í aug­unum.“

Aðspurður seg­ist Elías ekki vita …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár