Hagfræðingur Viðskiptaráðs segist hafa verið „skrambi glaður“ undir lágmarkslaunum

Bendir á að mik­ill meiri­hluti mann­kyns dregur fram lífið á krapp­ari kjörum en íslenskt lág­tekju­fólk. Við­skipta­ráð varar við „óupp­lýstri umræðu um vax­andi mis­skipt­ingu“.

Hagfræðingur Viðskiptaráðs segist hafa verið „skrambi glaður“ undir lágmarkslaunum

Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs, bendir á að mik­ill meiri­hluti mann­kyns­ins lifi á lak­ari kjörum en sem nemur 235 þús­und íslenskum krónum á mán­uði. Sjálfur hafi hann búið við slík kjör og verið „skrambi glaður“. Þetta segir hann í umræðum um ójöfnuð á Twitter. 

Tilefnið er umfjöllun Við­skipta­ráðs und­an­farna daga um tekju­dreif­ingu á Íslandi. Hag­stofan birti gögn um dreif­ingu heild­ar­tekna á föstu­dag. Þar er ekki að finna upp­lýs­ingar um ráð­stöf­un­ar­tekjur né heild­ar­dreif­ingu milli tekju­tí­unda. Hins vegar er gerð grein fyrir þróun svo­kall­aðra tekju­tí­unda­marka milli ára. Við­skipta­ráð telur ljóst af þeim tölum að tekju­jöfn­uður hafi auk­ist árið 2017. Haft var ettir fram­kvæmda­stjóra Við­skipta­ráðs á Stöð 2 í gær að var­ast þyrfti „óupp­lýsta umræðu um vax­andi mis­skipt­ingu í sam­fé­lag­inu“. 

Í umfjöllun Við­skipta­ráðs um tölur Hag­stof­unnar kemur fram að „til dæmis hækk­uðu atvinnu­tekjur hjá ein­stak­lingi með hærri tekjur en 10% ein­stak­linga, eða við 10% tíunda­mörkin, um 12% árið 2017 og um 13% hjá ein­stak­lingi með hærri tekjur en 20% ein­stak­linga“ en „á hinn bóg­inn hækk­uðu atvinnu­tekjur um 5% hjá ein­stak­lingi með hærri tekjur en 90% fram­telj­enda“.

Í krónu­tölum felst í þessu að neðstu tekju­tí­unda­mörkin hækk­uðu um 115 þús­und á ári meðan efstu tíunda­mörkin hækk­uðu um 474 þús­und, eða rúm­lega fjórum sinnum meira.

Konráð Guð­jóns­son hefur tjáð sig um tekju­dreif­ing­ar­töl­urnar á Twitter og hæðst að umræðu um sívax­andi ójöfnuð. Andri Sig­urðs­son for­rit­ari spyr hann hvort hann myndi glaður lifa á 235 þús­und krónum á mán­uði, eða lág­marks­launum eftir skatt.

„Ég hef lifað á lægri fjár­hæðum og verið skrambi glaður,“ svarar Konráð og bætir við: „Ca. 96% mann­kyns lifir á lægri fjár­hæðum.“  

Kon­ráð starf­aði áður sem hag­fræð­ingur á skrif­stofu for­set­ans í Tansan­íu og sótti starfs­nám hjá Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun í Úganda. Einnig hefur hann starfað á grein­ing­ar­deild Arion banka, veitt leið­sögn við lax­veiði og kennt hag­fræði fast­eigna­mark­að­ar­ins við End­ur­menntun Háskóla Íslands. 

Síðasta vor greindi hann frá því að honum hefði verið hótað eftir að hann skrif­aði grein­ina „Hálauna­landið Ísland“. Hann útskýrði málið í sam­tali við Frétta­blaðið. „Það er hrein­lega þannig að laun á Íslandi, ef þú mælir þau í erlendri mynd, þá eru þau með þeim hæstu í heimi, þau eru önnur hæstu í heimi á vinnu­stund. Það er stað­reynd. En svo, eins og er tekið fram í grein­inni, þá er verð­lagið hér hærra en víð­ast ann­ars staðar. Þannig kaup­mátt­ur­inn er ekki eins hár og ann­ars staðar, en hann er samt sem áður ell­efti mesti á vinnu­stund sam­kvæmt, OECD og því sá ell­efti mesti í heim­inum. Það er mögu­lega þessi ein­falda stað­reynd, sem er þó studd með gögnum OECD, eða Efnahags- og fram­fara­stofn­unar Evrópu, og eflaust hægt að styðja með gögnum fleiri alþjóð­legra stofn­anna. Það er fjallað um ýmis­legt meira í grein­inni, eins og hvernig kaup­mátt­ur­inn skipt­ist og ólíkar ástæður þess að fólk sé óánægt. Með hlið­sjón af þessu þá verð ég að játa að ég átta mig ekki alveg á því af hverju fólk er ósátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár