Seldi hlut sinn í Já hf. Katrín Olga Jóhann­es­dóttir, for­maður Við­skipta­ráðs, þén­aði 80 millj­ónir í fjár­magnstekjur árið 2017. Mynd: Viðskiptaráð á Youtube

Hátekjufólk í hagsmunabaráttu: Berjast gegn samneyslu og sköttum

Lyk­il­menn hjá stærstu hags­muna­sam­tökum atvinnu­rek­enda eru að með­al­tali með 2,5 millj­ónir í laun á mán­uði en þén­uðu þar að auki sam­tals 132 millj­ónir í fjár­magnstekjur árið 2017. Þeir til­heyra tekju­hóp­unum sem mestum sköttum hefur verið létt af á und­an­förnum árum.

Fólkið sem stýrir hags­muna­bar­áttu íslenskra atvinnu­rek­enda og situr í fram­kvæmda­stjórnum Samtaka atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráðs Íslands var að með­al­tali með 2,5 millj­ónir í almennar mán­að­ar­tekjur í fyrra en þar að auki runnu sam­tals 132 millj­ónir til þess­ara fimmtán ein­stak­linga í formi fjár­magnstekna. 

Samtök atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráð höfðu afger­andi áhrif á umræðu um skatta- og rík­is­fjár­mál í aðdrag­anda síð­ustu alþing­is­kosn­inga og beittu sér af krafti gegn hug­myndum stjórn­mála­flokka um hækkun skatta á fjár­magn og fyr­ir­tæki.

Hags­muna­sam­tökin hafa einnig varað ein­dregið við auk­inni sam­neyslu og aðgerðum til að sporna við ójöfn­uði og hvatt til þess að reikni­reglu fjár­magnstekju­skatts verði breytt til að verja skatt­að­ila fyrir verð­bólgu­á­hrifum. Slík áform eru boðuð í fjár­mála­á­ætlun núver­andi rík­is­stjórnar og gætu skipt sköpum fyrir tekju­hæstu hópa íslensks sam­fé­lags ef ræt­ist úr áhyggjum Seðla­banka Íslands og fjár­mála­ráðs af því að aðhalds­leysi í rík­is­fjár­málum muni kynda undir verð­bólgu á næstu árum.

Öflugur fram­kvæmda­stjóriHalldór Benjamín þykir hafa staðið sig vel …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríka Ísland

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár