„Ekki hægt að kæra þjófnaðinn. Enginn við“

Snorri Magn­ús­son, for­maður Lands­sam­bands lög­reglu­manna, vekur athygli á þjón­ustu­skerð­ingu hjá lög­regl­unni eftir nið­ur­skurð og aðhald síð­ustu ára. Löggæslu verður áfram snið­inn þröngur stakkur sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar.

„Ekki hægt að kæra þjófnaðinn. Enginn við“
Döpur þjón­usta Ekki var hægt að kæra síma­þjófnað til lög­reglu, enda var eng­inn við á Hverf­is­götu. Mynd: PressPhotos

Snorri Magn­ús­son, for­maður Lands­sam­bands lög­reglu­manna, gagn­rýnir harð­lega mann­eklu og skerta þjón­ustu hjá lög­reglu í færslu sem hann birti á Facebook í gær. Til vitnis um bágt ástand nefnir hann að kunn­ingi sinn, kona sem ætl­aði að kæra þjófnað, hafi komið að lok­uðum dyrum á lög­reglu­stöð­inni við Hverf­is­götu. „Ekki hægt að kæra þjófn­að­inn. Enginn við. Búið var að stað­setja sím­ann – líkt og hægt er með flesta síma í dag – þannig að konan ein­fald­lega fór sjálf og sótti hann í eitt­hvað greni í bænum,“ skrifar Snorri og bætir því við að þetta sé „þjón­usta hins opin­bera í hnot­skurn“. 

Stundin hefur áður fjallað ítar­lega um nið­ur­skurð og strangar aðhalds­kröfur gagn­vart lög­reglu. Lög­reglu­mönnum fækk­aði á Íslandi um 10 pró­sent frá alda­mótum til árs­ins 2014 og und­an­farin ár hafa lög­reglu­emb­ætti gagn­rýnt harð­lega að bætt staða rík­is­sjóðs skili sér ekki betur í upp­bygg­ingu lög­gæsl­unnar en raun ber vitni.

„Um margra ára skeið hefur lög­reglan verið fjársvelt; lög­reglu­mönnum, lög­reglu­stöðvum og lög­reglu­bif­reiðum hefur fækkað, emb­ætti hafa verið sam­einuð, og á end­anum hefur þetta auð­vitað í för með sér minni og veik­ari lög­gæslu um land allt,“ sagði Snorri Magn­ús­son, for­maður Lands­sam­bands lög­reglu­manna, þegar Stundin ræddi við hann haustið 2016. „Þetta ger­ist á meðan íbúum hefur fjölgað og fleiri ferða­menn streyma til lands­ins en nokkru sinni fyrr.“

Óljóst er af fjár­mála­á­ætlun núver­andi rík­is­stjórnar hve mikil útgjalda­aukn­ing er ætluð lög­regl­unni, en ljóst er að ekki er um háar fjár­hæðir að ræða. Heild­ar­út­gjöld til almanna- og réttar­ör­ygg­is­mála aukast um 18,2 millj­arða á áætl­un­ar­tíma­bil­inu, þar af er 14 millj­örðum varið til kaupa á nýjum þyrlum fyrir Land­helg­is­gæsl­una, og deil­ast hinir 4,2 millj­arð­arnir niður á landamæra­vörslu, ákæru­vald og rétt­ar­vörslu, fulln­ustu­mál, rétt­ar­að­stoð og lög­gæslu­mál. Athygli vekur að í fjár­mála­á­ætl­un­inni er til­greint það mark­mið að árið 2023 verði lög­regla í 90 pró­sentum til­vika til­búin með laust og mannað öku­tæki til að sinna brýn­ustu neyð­ar­út­köllum um leið og þau ber­ast, svo sem þegar þörf er á lífs­bjarg­andi aðstoð. Þannig telja stjórn­völd ásætt­an­legt að í 10 pró­sentum neyð­ar­til­vika geti lög­regla ekki brugð­ist umsvifa­laust við hjálp­ar­kalli þeirra sem þurfa á hjálp að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár