Var andvígur frekari uppbyggingu félagslegs húsnæðis fyrir kosningar en gagnrýnir nú meirihlutann fyrir að hunsa vandann

Eyþór Arnalds lýsti sig gersam­lega mótfallinn aukinni áherslu á uppbyggingu félags­legs húsnæðis í Reykjavík í kosninga­prófi RÚV í aðdrag­anda sveitar­stjórnar­kosninga. Nú leggur hann fram bókanir þar sem meirihlutinn er gagn­rýndur fyrir að „hunsa mála­flokkinn“.

Eyþór Arnalds, leiðtogi Sjálfstæðis­flokksins í borginni og borgar­ráðs­fulltrúi, lýsti sig mótfallinn aukinni áherslu á uppbyggingu félags­legs húsnæðis í Reykjavík í kosninga­prófi RÚV í aðdrag­anda sveitar­stjórnar­kosninga. Í gær lagði hann hins vegar fram bókanir, ásamt fleiri borgar­ráðs­fulltrúum minni­hlutans, þar sem fundið er að stöðu félags­legs húsnæðis í Reykjavík og borgin sögð hafa hunsað mála­flokkinn um langa hríð. 

„Það er hjákátlegt að meirihlutinn ætlar að varpa ábyrgðinni á aðgerðar­leysi borgarinnar síðustu árin að fjölga félags­legum íbúðum yfir á ríkið,“ segir í bókun sem borgar­ráðs­fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins lögðu fram ásamt áheyrnar­fulltrúa Miðflokksins og Flokks fólksins. „Þessi meirihluti eins og síðustu tveir virðist algjör­lega vera búinn að gleyma því að borgin fer með skipulags­valdið, sér um lóða­úthlutanir og á Félags­bústaði og gat byggt og keypt litlar íbúðir síðustu árin. Viljinn var hins vegar enginn.“ Í annarri bókun, sem fulltrúi Sósíalista­flokksins stóð einnig að, segir: „Sú staða sem nú er uppi í Reykjavík hvað varðar félagslegt húsnæði er á ábyrgð fráfar­andi meirihluta borgar­stjórnar. Hvað gera á til framtíðar er góðra gjalda vert en breytir því ekki að þessi mála­flokkur hefur verið hundsaður hjá borginni um langa hríð.“

Snæbjörn Brynjarsson, rithöfundur og vara­þingmaður Pírata, bendir á það á Facebook að þegar Eyþór tók kosninga­próf RÚV í vor og lýsti afstöðu sinni til ýmissa mála lýsti hann sig fullkomlega andvígan frekari uppbyggingu félagslegsra íbúða í Reykjavík. Hér má sjá skjáskot af vef RÚV:

Svona svar­aði Eyþór.

Í bókun frá borgar­ráðs­fulltrúum Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna er bent á að aldrei hafa verið fleiri íbúðir í uppbyggingu í sögu Reykja­víkur. „Hvergi á Íslandi eru framlög til húsnæðis­mála hærri en í Reykjavík. Á árunum 2018-2022 eru framlögin áætluð upp á 70 milljarða og þar af eru 14,2 milljarðar áætlaðir í ár. Þá fjölgar félags­legu húsnæði ört enda kaupa Félags­bústaðir íbúðir í nær öllum uppbyggingar­verkefnum sem nú eru í gangi í Reykjavík með það fyrir augum að stytta til muna biðlista eftir félags­legu leigu­húsnæði,“ segir í bókuninni. „Ef öll sveitar­félög á höfuð­borgar­svæðinu ættu sama hlutfall félagslegra íbúða og Reykjavík þá væru líklega engir biðlistar eftir félags­legu húsnæði. Það væri því æskilegt að sett verði lög um lágmarks­hlutfall félagslegra íbúða í eigu sveitar­félaga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðju­samstarfi en myndaði atkvæða­blokk með Sjálfstæðis­flokknum

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins, sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálfstæðis­flokknum og Miðflokknum af praktískum ástæðum. „Framkvæmdar­stjóri borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sendi fyrir hönd allrar stjórnar­andstöðunnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæjar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæjar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borgar­stjóra New York og London. Báðir bæjar­stjórar eru á hærri launum en forsætis­ráðherra. Laun bæjar­stjóra Kópavogs hækkuðu um tæp 58% á kjör­tímabilinu og laun bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar um 36%. „Allt óréttlæti mun kalla á meiri óánægju,“ segir formaður stéttar­félagsins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár