Elísabet skilar fálkaorðunni: „Ég get ekki verið í riddaraklúbbi með kynþáttahatara“

Kvik­mynda­gerð­ar­kona hyggst skila fálka­orðu sinni til að mót­mæla því að Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins, fékk stór­ridd­ara­kross í fyrra. „Trúlega hættu­leg­asti og mest sjar­mer­andi kyn­þátta­hat­ari nor­rænna stjórn­mála“ segir hún í bréfi til for­seta.

Elísabet skilar fálkaorðunni: „Ég get ekki verið í riddaraklúbbi með kynþáttahatara“
Elísabet Ron­alds­dóttir Elísabet hefur getið sér gott orð sem klipp­ari í Hollywood og komið að gerð margra stór­mynda und­an­farin ár. Mynd: Lilja Pálmadóttir

Elísabet Ron­alds­dóttir klipp­ari mun skila heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu, þar sem Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins, hlaut stór­ridd­ara­kross í fyrra. Hún sendi for­seta Íslands, orðu­nefnd og for­seta­rit­ara tölvu­póst þess efnis í dag og mun skila orð­unni sjálfri eftir helgi.

„Nú var ég að kom­ast að því að nýlega var for­seta danska þjóð­þings­ins afhentur stór­ridd­ara­kross frá Íslend­ingum,“ skrifar Elísabet á Facebook. „Pia Kjærs­gaard, trú­lega hættu­leg­asti og mest sjar­mer­andi kyn­þátta­hat­ari nor­rænna stjórn­mála. Hún er orðin stór­ridd­ari Íslensku fálka­orð­unnar.“

Elísabet hefur starfað við kvik­mynda­gerð í yfir 20 ár og hefur und­an­farið getið sér góðs orðs í Hollywood fyrir klipp­ingu. Á meðal stór­mynda sem hún hefur klippt má nefna John Wick, Atomic Blonde og Deadpool 2, auk fjölda íslenskra kvik­mynda.

„Það hefur alltaf verið þörf en nú er nauð­syn að taka skýra afstöðu gegn kyn­þátta­hatri og fas­isma sem fer sem eldur í sinu um bæði Evrópu og Norður Ameríku og því hef ég ákveðið að senda ykkur til baka mína fálka­orðu,“ skrifar Elísabet. „Henni er hér með skilað. Ég get ekki verið í ridd­ara­klúbbi með kyn­þátta­hat­ara.“

Póstur Elísa­betarElísabet stílar tölvu­póst­inn á for­seta Íslands, orðu­nefnd og for­seta­rit­ara.

Bréf Elísabetar til forseta:

Til orðu­nefndar for­seta­emb­ætt­is­ins.

Hinn 1. jan­úar 2016 varð ég þess aðnjót­andi að fá heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu, fyrir störf að íslenskri og alþjóð­legri kvik­mynda­gerð. Ég tók mér nokkurn tíma til umhugs­unar því margur svartur sauð­ur­inn hefur þegið sömu við­ur­kenn­ingu og þó ég sé almennt lítið gefin fyrir heið­urs­merki, hugs­aði ég hlýtt til þeirra sem til­nefndu mig og töldu mig hennar verð­uga. Ég tók því að lokum stolt við orð­unni, fyrir hönd kyn­systra minna í brans­anum og fjöl­skyld­unnar sem hefur fylgt mér gegnum allt. Nú var ég að kom­ast að því að nýlega var for­seta danska þjóð­þings­ins afhentur stór­ridd­ara­kross frá Íslend­ingum. Pia Kjærs­gaard, trú­lega hættu­leg­asti og mest sjar­mer­andi kyn­þátta­hat­ari nor­rænna stjórn­mála. Hún er orðin stór­ridd­ari Íslensku fálka­orð­unnar. Það hefur alltaf verið þörf en nú er nauð­syn að taka skýra afstöðu gegn kyn­þátta­hatri og fas­isma sem fer sem eldur í sinu um bæði Evrópu og Norður Ameríku og því hef ég ákveðið að senda ykkur til baka mína fálka­orðu. Henni er hér með skilað. Ég get ekki verið í ridd­ara­klúbbi með kyn­þátta­hat­ara.

Virð­ing­ar­fyllst, 
Elísabet Ron­alds­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár