„Fólki sem líður illa getur alltaf fundið einhverja ástæðu til að mótmæla“

Einar Hann­es­son, aðstoð­ar­maður ráð­herr­ans sem fer með trú­mál, mann­rétt­inda­mál og mál­efni hæl­is­leit­enda í rík­is­stjórn Íslands, hæð­ist að þeim sem kippa sér upp við ræðu­höld Piu Kjærs­gaard á afmæl­is­há­tíð full­veld­is­ins. „Sumir þurftu að vera með fílu­svip,“ skrifar hann.

„Fólki sem líður illa getur alltaf fundið einhverja ástæðu til að mótmæla“

„Fólki sem líður illa getur alltaf fundið ein­hverja ástæðu til að mót­mæla,“ segir Einar Hann­es­son, aðstoð­ar­maður Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra, í færslu sem hann birti á Facebook um hátíð­ar­fund Alþingis á Þing­völlum í gær.

Einar segir það hafa spillt gleð­inni „á þessum merkis tíma­mótum að sumir þurftu að vera með fílu­svip og reyna að hleypa fund­inum upp með alls kyns mót­mælum út af mis­mun­andi ágrein­ings­efnum.“ Þá spyr Einar hvort „ekki sé nóg komið af þessu 2008 rugli“.

Hátíð­ar­höldin féllu í skugg­ann af harð­vít­ugum deilum vegna ræðu­halda Piu Kjærs­gaard á þing­fund­inum, en Pia er for­seti danska þings­ins, fyrr­ver­andi for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins og einn af frum­kvöðlum skand­in­av­ísks þjóð­ern­ispopúl­isma. Hún er þekkt fyrir útlend­inga­andúð og bar­áttu sína gegn fjöl­menn­ingu og íslam og hefur til að mynda kallað eftir því að dönsk stjórn­völd banni inn­flytj­endum sem ekki eru af vest­rænum upp­runa að setj­ast að í Danmörku.

Þegar greint var frá því að Pia myndi halda hátíð­ar­ræðu á fund­inum brást almenn­ingur og hluti þing­manna harka­lega við. Þannig ákvað þing­flokkur Pírata að snið­ganga fund­inn, Helga Vala Helga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, gekk af þing­pall­inum er Pia steig í pontu og margir þing­menn úr mis­mun­andi stjórn­mála­flokkum sýndu óánægju sína í verki með því að bera lím­miða til höf­uðs ras­isma. Á mið­unum var áletrað „Nej til racisme“ eða “Nei við kyn­þátta­hyggju“.

Facebook-færsla Einars.

Einar tekur jafn­framt fram í athuga­semd við eigin færslu að mik­ill fjöldi fólks hafi lagt leið sína á Þing­velli en færri hafi komið en áætlað hefði verið. Fyr­ir­fram var búist við að allt að sex til sjö þús­und manns myndu mæta en aðeins létu um tvö til þrjú hund­ruð manns sjá sig. 

Meg­in­hlut­verk Einars sem aðstoð­ar­maður ráð­herra er að vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins en undir ráðu­neytið heyra meðal ann­ars mann­rétt­inda­mál, trú­mál og mál­efni hæl­is­leit­enda.

Gagnrýna mótmælin harðlega

Á meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt mót­mælin vegna ávarps og veru Piu Kjærs­gaard á hátíð­ar­fund­inum er Bjarni Bene­diktsson fjár­mála­ráð­herra. „Þegar Alþingi Íslend­inga býður for­seta danska þjóð­þings­ins til að vera við­staddur hátíð­ar­höld vegna sögu­legra tíma­móta finnst þessu fólki þannig við hæfi að úti­loka við­kom­andi ein­stak­ling, kos­inn í frjálsum almennum kosn­ingum,“ skrif­aði Bjarni á Facebook um málið.

Ásmundur Frið­riks­son, sam­flokks­maður Bjarna, tjáði sig einnig um ákvörðun Pírata í gær. „Pírata sýna lít­ils­virð­ingu sína á lýð­ræð­inu og skoð­unum fólks en mest er skömm þeirra við þjóð­ina að mæta ekki á þing­fund á Þing­völlum á merkum tíma­mótum í sögu sjálf­stæð­is­bar­áttu Íslend­inga,“ skrif­aði Ásmundur.

Þá sagði Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, í sam­tali við Vísi, að afstaða Pírata til veru Piu á hátíð­ar­fund­inum vera von­brigði og það væri leið­in­legt fyrir Pírata að missa af þess­ari stund. „Þetta voru nú einu sinni samn­ingar þar sem danska þingið og Alþingi léku lyk­il­hlut­verk. Þannig að þetta var ekki ein­stak­ling­ur­inn Pia Kjærs­gaard með sínar umdeildu skoð­anir sem var hér gestur okkar, heldur for­seti danska þjóð­þings­ins,“ sagði Stein­grímur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár