Heimsókn á Hótel Adam: Rekstrarleyfi falið, dularfullur bjór og starfsmaður bað um hjálp

Blaða­maður heim­sótti Hótel Adam með eft­ir­litsteymi VR og Eflingar þar sem rekstr­ar­leyf­is­bréf stað­ar­ins fannst falið bak við vín­flöskur. Starfs­maður bað um aðstoð við úrlausn sinna mála.

Heimsókn á Hótel Adam: Rekstrarleyfi falið, dularfullur bjór og starfsmaður bað um hjálp
Rekstr­ar­leyfi hulið Samkvæmt lögum skal leyf­is­hafi hafa leyfi sýni­legt fyrir við­skipta­vinum. Blaða­maður þurfti að færa frá vín­flöskur til að sjá leyfið. Mynd: Vera Pálsdóttir/HokusFokus.is

Rekstr­ar­leyf­is­bréf Hótels Adams á Skóla­vörðu­stíg var falið á bak við vín­flöskur þegar eft­ir­lits­full­trúa VR og Eflingar bar að garði á þriðju­dag.

Blaða­maður Stund­ar­innar var með í för og ræddi við starfs­mann hót­els­ins sem greindi frá því að stað­ur­inn væri að leigja út 25 her­bergi til gesta, mun fleiri en hót­elið hefur leyfi fyrir.

Þar að auki sagð­ist starfs­mað­ur­inn greiða 80.000 krónur mán­að­ar­lega fyrir að deila íbúð með Ragnari Guð­munds­syni, eig­anda hót­els­ins.

Samkvæmt lögum 85/2009 um veit­inga­staði, gisti­staði og skemmt­ana­hald skal leyf­is­hafi „hafa leyf­is­bréf til leyf­is­skyldrar starf­semi sam­kvæmt lögum þessum sýni­legt fyrir við­skipta­vinum þar sem leyf­is­skyld starf­semi fer fram.“

Á Hótel Adam fannst rekstr­ar­leyfi hulið bak við vín­flöskur, en brot við þessu ákvæði varðar sektum. Rekstr­ar­leyfið reynd­ist útrunnið, en það gilti aðeins út 27. júní 2015.

Útrunnið og faliðRekstr­ar­leyfið er löngu útrunnið og leyf­is­bréfið var falið á bak við vín­flöskur.

Borgar 80.000 í leigu fyrir íbúð 
sem hún deilir með eigandanum

Eft­ir­lits­full­trúar stétta­fé­lag­anna ræddu við konu sem var að störfum á hót­el­inu. Konan er frá Mið-Evrópu líkt og Kristýna Králová sem vann á Hótel Adam fyrir tveimur árum og lýsti nýlega hremm­ingum sínum í for­síðu­við­tali við Stundina.

Starfs­mað­ur­inn átti erfitt með að tjá sig, tal­aði ekki íslensku og tak­mark­aða ensku, en gat upp­lýst um að hún hefði unnið á Hótel Adam í tæp­lega tvö ár.

Hún sagð­ist vita að hún þyrfti að fara til Eflingar að ræða sín mál. Hún sýndi launa­seðla sína frá maí og júní, en á þeim sá blaða­maður að reitur merktur félags­gjald var auður, sem gefur til kynna að atvinnu­rek­andi borgi ekki hlut af launum til stétt­ar­fé­lags hennar. Það er skýrt brot á lögum um starfs­kjör launa­fólks og skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda. Lögin kveða á um skyldu atvinnu­rek­anda til að „halda eftir af launum starfs­manns iðgjaldi hans til við­kom­andi stétt­ar­fé­lags sam­kvæmt þeim reglum, sem kjara­samn­ingar greina.“

Á seðl­inum kom einnig fram að 80.000 krónur voru dregnar af launum hennar fyrir leigu. Hún sagði blaða­manni að hún svæfi í sömu íbúð og Ragnar, eig­andi hót­els­ins, en þó í öðru her­bergi. Þegar blaða­maður spurði hversu mörg her­bergi væru til útleigu sagði hún að þau væru 25, en rekstr­ar­leyfi hót­els­ins leyfir að hámarki 18 manns að gista á hót­el­inu. Tólf her­bergi voru inn­sigluð af lög­reglu árið 2016 þar sem of mörg her­bergi voru þá í útleigu.

Starfs­mað­ur­inn spurði blaða­mann og full­trúa hvort þeir gætu hjálpað sér og fékk þau svör að hún þyrfi að mæta til Eflingar til að fá þá aðstoð sem hún þarfn­ast.

Dýrar ferðir út á flugvöll og dularfullur bjór

Bjór til söluZubr er tékk­neskur bjór sem hefur ekki verið til sölu hjá áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins síðan árið 2005. Hótel Adam hefur fengið bjór­inn frá sjálf­stæðum byrgjum, flutt hann inn, eða smyglað honum til lands­ins.

Í heim­sókn­inni sá blaða­maður aug­lýst far með flug­vall­ar­útu að Kefla­vík­ur­flug­velli á €40, eða 4.990 krónur, sem er rúm­lega 1.000 krónum dýr­ari en hjá helstu ferða­þjón­ustu fyr­ir­tækj­unum. Kynn­is­ferðir bjóða far­þegum ferð af hót­eli sínu á flug­völl­inn fyrir 3.950 krónur, Airport Direct á 3.340 krónur, og Grayline á €26, eða 3.244 krónur. Ekki kom fram hvaða fyr­ir­tæki sér um þessa þjón­ustu hjá Hótel Adam.

Einnig sást til sölu tékk­neski bjór­inn Zubr Gold, en sam­kvæmt ÁTVR hefur bjór frá þessum brugg­ara ekki verið til sölu hjá áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins síðan árið 2005.

Mögulegt er að Hótel Adam hafi keypt bjór­inn frá sjálf­stæðum byrgjum eða flutt hann inn sjálft. Sami bjór var til sölu á Hótel Adam fyrir tveimur árum, en heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur taldi hót­elið hafa selt þann bjór í leyf­is­leysi mars 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár