Kjör Ásgerðar ekki endurskoðað: „Við Ásgerður eigum í þéttu sambandi“

Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, seg­ist vilja gefa fólki tæki­færi til að breyt­ast og þroskast.

Kjör Ásgerðar ekki endurskoðað: „Við Ásgerður eigum í þéttu sambandi“
Kolbrún Bald­urs­dóttir, odd­viti Flokks fólks­ins.

Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, segir að kjör Ásgerðar Jónu Flosa­dóttur í mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráð Reykja­vík­ur­borgar verði ekki end­ur­skoðað af hálfu flokks­ins.

„Ég fylgist vel með sem odd­viti Flokk fólks­ins og við Ásgerður eigum í þéttu sam­bandi. Ef þú þekkir mig af mínum störfum þá veistu alveg hvar ég stend varð­andi fólk í heim­inum. Ef það er eitt­hvað sem myndi stuða mig eða stinga í þessu sam­starfi okkar þá myndi vera tekið strax á slíku en ég hef ekki orðið vör við það,“ segir Kolbrún.

Ásgerður situr sem aðal­maður í mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráði Reykja­vík­ur­borgar. Hún hefur áður tengst stjórn­mála­flokkum sem gagn­rýndir hafa verið um kyn­þátta­for­dóma. Þá hefur hún deilt áróðri gegn múslimum á Facebook-síðu sinni og við­ur­kennt að hún hafi mis­munað skjól­stæð­ingum Fjöl­skyldu­hjálpar eftir þjóð­erni.

„Fólk hefur auð­vitað í gegnum tíð­ina sagt og gert senni­lega ýmis­legt. En ég vil líka gefa fólki bara annað tæki­færi til þess breyt­ast og þroskast og skipta um skoð­anir og guð má vita,“ segir Kolbrún. Þá seg­ist hún ekki vera „í þeirri stöðu að gagn­rýna hvað fólk sagði fyrir tíu, fimmtán árum“. 

Aðspurð hvort kjör Ásgerðar verði end­ur­skoðað segir hún að það sé ekki dag­skrá. „Þú veist nú hvernig pólítikin er, það getur auð­vitað allt gerst í henni. Þegar þú spyrð um þetta núna þá er það ekki uppi á borði. Hún er nýkomin í nefnd­ina, það er nýbúið að ganga frá þessu öllu. Við erum að tala um innan við mánuð. Það væri mjög skrýtið ef það væri strax farið í að end­ur­skoða þetta. Hefðir þú kannski átt þetta sam­tal við mig áður en búið var að ganga frá öllu þessu þá veit ég ekki hvað ég hefði sagt. Nú er þetta fast í hendi,“ segir Kolbrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár