Leiga af ódýrustu nýju íbúðinni kostar öll mánaðarlaunin fyrir utan þrjú þúsund krónur

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, gagn­rýnir leigu­kostnað við leigu­í­búðir Heima­valla. Hann segir VR hafa tölur sem sýna að leigu­fé­lögin hafi hækkað húsa­leigu um 50 til 70 pró­senta síð­ustu fjórtán mán­uði.

Leiga af ódýrustu nýju íbúðinni kostar öll mánaðarlaunin fyrir utan þrjú þúsund krónur
Ragnar Þór Ing­ólfs­son Hefur safnað sögum frá leigj­endum stóru leigu­fé­lag­anna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Leigu­verð á 57 fer­metra íbúð leigu­fé­lags­ins Heima­valla jafn­gildir öllum útborg­uðum launum þess sem er á samn­ings­bundnum lág­marks­launum, að frá­töldum þrjú þús­und krónum. 

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að leigu­fé­lögin hafi hækkað húsa­leigu um 50 til 70 pró­sent síð­ustu fjórtán mán­uði, sam­kvæmt tölum stétt­ar­fé­lags­ins. Hann gagn­rýndi leigu­verðið í Facebook-færslu í dag. Ragnar segir VR nú skoða „nýjar og rót­tækar leiðir í hús­næð­is­málum“.

„Útborguð lág­marks­laun eru í dag 248.000 kr. Og voru hús­næð­is­bætur lækk­aðar hjá stórum hópi fólks eftir síð­ustu hækkun kjara­samn­inga. Leigu­fé­lögin hafa að með­al­tali hækkað húsa­leigu um 50 til 70% á umþb. 14 mán­uðum sam­kvæmt þeim gögnum sem VR hefur undir höndum,“ segir hann og bendir á að ódýrasta leigu­hús­næði Heima­valla í nýju hús­næði nærri Útvarps­hús­inu fáist á 245 þús­und krónur á mán­uði.

Auðvelt að fara fram hjá skilyrðum um leiguíbúðalán

Um er að ræða nýja íbúð við Jað­ar­leiti 8 á svoköll­uðum RÚV reit. Samkvæmt aug­lýs­ingu Heima­valla er leigu­samn­ing­ur­inn tíma­bund­inn til eins árs, en leigan tekur breyt­ingum sam­kvæmt vísi­tölu neyslu­verðs og er án raf­magns. Farið er fram á trygg­ingu sem nemur þriggja mán­aða húsa­leigu. Skila þarf inn láns­hæf­is­mati frá Creditinfo ásamt saka­vott­orði með umsókn, ann­ars er hún ekki tekin gild.

Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Heima­valla kom fram að félagið skuld­aði Íbúða­lána­sjóði 18,6 millj­arða króna í svokölluð leigu­í­búða­lán undir lok síð­asta árs. Miðað við þetta er ljóst að Heima­vellir, eða félög sem urðu hluti Heima­valla með sam­ein­ingum, hefur tekið stóran hluta af leigu­í­búða­lán­unum hjá Íbúða­lána­sjóði, sem veitir lán til leigu­fé­laga á þeim grund­velli að ekki sé um gróða­rekstur að ræða.

Fram hefur komið í umfjöllun Stund­ar­innar að hægur leikur sé að fara fram hjá skil­yrðum hins rík­is­rekna Íbúða­lána­sjóðs um að lánin séu ekki fyrir leigu­fé­lögin og eig­endur þeirra til að hagn­ast á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár