Berst gegn umgengnistálmunum en hélt sjálfur barni frá móður þess

Gunnar Waage, fram­bjóðandi Karla­listans, hefur látið mikið að sér kveða í umræðu um umgengni­stálm­anir. Sjálfur hefur hann ítrekað haldið dóttur sinni frá móður hennar og forsjár­aðila, en í eitt skipti sótti barnið ekki skóla um margra vikna skeið.

Segist fórnarlamb tálmunar
Segist fórn­ar­lamb tálm­unar Gunnar Waage hefur lýst því opin­ber­lega að barns­móðir sín sé veik, hafi logið upp á sig og tálmað umgengni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Gunnar Waage, vara­formaður Karla­listans og baráttu­maður gegn umgengnistálmunum, hefur ítrekað haldið dóttur sinni frá móður hennar og forsjár­aðila. Í eitt skiptið braust Gunnar inn á heimili mæðgnanna samkvæmt dagbók lögreglu og nam barnið á brott. Í annað skipti hélt hann dóttur sinni frá skóla um nokkurra vikna skeið og neitaði að skila henni til móður sinnar þrátt fyrir að hún færi með fulla forsjá. Stúlkan fór ekki heim til móður sinnar fyrr en eftir að innsetningar­krafa hafði verið tekin til meðferðar í héraðs­dómi og dómssátt verið gerð. 

Barns­móðir Gunnars leitaði til Kvenna­athvarfsins meðan þau bjuggu saman árið 2008, en bæði hún og sonur hennar úr fyrra sambandi hafa sakað Gunnar um ofbeldi. Barna­verndar­yfirvöld höfðu ítrekað afskipti af málefum barnsins og komu fram þungar ásakanir frá foreldrum á báða bóga sem aldrei leiddu þó til ákæru eða dóms.

Gunnar segir í samtali við Stundina að barns­móðir sín sé veik og hafi ítrekað logið upp á sig. Í þessu samhengi bendir hann meðal annars á að dómari hafi látið þau orð falla í réttarsal samkvæmt hljóð­upptöku að ásakanir móður væru falskar. Jafnframt vísar Gunnar til álits­gerðar matsmanns sem lögð var fram í aðdrag­anda dóms­sáttar árið 2016, en þar kemur fram að báðir foreldrar séu forsjár­hæfir en vangeta þeirra til að leysa úr ágreiningi sín á milli kunni að jaðra við vanhæfni.

Berst gegn umgengnistálmunum

Gunnar Waage hefur undan­farna mánuði látið mikið að sér kveða í umræðu um umgengnistálmanir og haldið úti vefsvæði þar sem hann gagnrýnir femínista af krafti. Þá hefur hann stofnað til stjórnmála­framboðs undir þeim formerkjum að brotið sé á rétti feðra. Hann er vara­formaður Karla­listans og skipar annað sæti á framboðs­lista flokksins fyrir borgar­stjórnar­kosningar.

 

Flokkurinn var stofnaður þann 25. apríl síðastliðinn „til að bæta stöðu karla, feðra og barna í jafnréttis­baráttunni“ að því er fram kemur í pistli eftir formanninn, Gunnar Kristin Þórðarson. Boðskapur Karla­listans og hópa sem tengjast honum, svo sem Samtaka umgengnis­foreldra og félags­skaparins #DaddyToo, hefur að miklu leyti hverfst um umgengnistálmanir forsjár­foreldra eða „tálmunar­mæðra“ eins og þær hafa verið kallaðar. 

Gunnar Waage hefur tjáð sig um eigin umgengnis­deilu á netinu. „Ég er löngu hættur að láta þessa veiku konu koma mér úr jafnvægi,“ skrifaði hann á Facebook í fyrra. „Þar sem að óprúttin kenning gengur um það á vegum fyrr­verandi konu minnar að ég hafi einhvern tímann tálmað umgengni, þá leiðrétti ég það hér með. Rétt er að eftir áralangar tálmanir hennar á umgengni dóttur minnar við mig, þá ákvað hún að saka mig um tálmun,“ skrifaði hann jafnframt. „Ríkis­saksóknari fór nefnilega vandlega yfir málið og sendi síðan til mín bréf sem inni­heldur niður­stöðu embættisins. Hún er sú að embættið telji ekki að um tálmun hafi verið að ræða enda hafi legið gildar ástæður því til grund­vallar að barnið færi ekki til móður sinnar og eru þær ástæður tilgreindar í bréfinu.“

Stundin hefur gögn málsins undir höndum, en það lýtur að atviki þar sem Gunnar ruddist inn á lögheimili barnsins, samkvæmt dagbók lögreglu, og sótti það utan umsamins umgengnis­tíma, fór með það á heimili foreldra sinna þar sem hann bjó í kjallara­herbergi og neitaði að skila því til móður þess sem fór með fulla forsjá.

Í niður­stöðu ríkis­saksóknara var ekki tekin afstaða til þess hvort „umgengnistálmun“ hefði farið fram. Niður­staðan laut að því hvort Gunnar hefði brotið 193. gr. almennra hegningar­laga um forsjár­sviptingu af ásetningi, en ákæru­valdið komst að þeirri niður­stöðu að svo væri ekki. Var talið að málið snerist um umgengnis- og forsjár­deilur foreldra en ekki refsivert athæfi og var því ákvörðun lögreglu­stjóra um að hætta rann­sókninni staðfest af embætti ríkis­saksóknara þann 30. september 2014. 

Um er að ræða eitt af þremur skiptum þar sem Gunnar hélt barni sínu frá móður þess, en í tvö skiptanna gerði hann það þótt óumdeilt væri að hún færi með fulla forsjá samkvæmt gerðum samningum.

 

Leitaði til Kvennaathvarfsins

Samband Gunnars og konunnar má rekja aftur til ársins 2003. Þau hófu sambúð snemma árs 2004 og bjuggu fyrst með tveimur börnum konunnar úr fyrra hjóna­bandi. Sonur hennar flutti þó fljótlega til föður síns, að eigin sögn vegna þess að skapofsa­köst Gunnars ollu honum vanlíðan. Í yfir­lýsingu sem hann lagði síðar fram vegna umgengnis­deilu móður hans og Gunnars kemur fram að Gunnar hafi ráðist á hann jólin 2005 og rekið hann út úr húsinu. Þessa frásögn hafa þeir sem viðstaddir voru staðfest. 

Dóttir Gunnars og konunnar fæddist árið 2006. Nokkrum vikum síðar barst barna­verndar­yfirvöldum nafnlaus tilkynning þar sem fram komu áhyggjur af því að Gunnar beitti barns­móður sína „andlegu ofbeldi og einangri hana frá vinum og fjöl­skyldu“. Tveimur árum síðar, sumarið 2008, leitaði konan til Kvenna­athvarfsins en samkvæmt stað­festingar­bréfi frá vaktstýru í athvarfinu dvaldist hún þar dagana 15. og 16. júní. Í árslok 2009, eftir að samskipti Gunnars og eldri dóttur hennar höfðu versnað til muna og hún óttaðist að missa hana af heimilinu, skildu þau Gunnar. Hann yfirgaf heimilið um áramótin og upp hófst harkaleg forræðis­deila. 

Setti skilyrði fyrir því að skila barninu

Eftir skilnaðinn bjó stúlkan hjá móður sinni en umgekkst Gunnar aðra hvora helgi. Eina helgina, rétt eftir að móðurafi barnsins lést og var jarð­sunginn, neitaði Gunnar að skila barninu. Að því er fram kemur í tölvu­pósti frá Katrínu Theodórs­dóttur, lögmanni konnunar, til Daggar Páls­dóttur, lögmanns Gunnars, fékk móðirin ekki að hitta dóttur sína né ræða við hana. „Barnið sem er aðeins 3ja ára gömul telpa hefur verið hjá móður sinni frá fæðingu og er því hiklaust haldið fram að maðurinn geti valdið barninu varlegum skaða með aðgerðum sínum í þeim tilgangi einum að tryggja stöðu sína í bráðabirgða­forsjármáli sem lögmaður hans hefur komið af stað,“ skrifaði Katrín. 

Dögg svaraði á þá leið að Gunnar hefði óskað eftir jöfnum samvistum foreldra meðan forsjár­málið væri rekið en móðirin hafnað því og hótað samvistar­slitum. Gunnar hefði „alvarlegar áhyggjur af andlegu ástandi hennar [móðurinnar] og þar með af öryggi barnsins hjá henni“. Engu að síður gerði hún barns­móðurinni eftir­farandi tilboð: „Ef umbjóðandi þinn er tilbúinn til að ganga nú þegar frá samkomu­lagi um viku / viku umgengni meðan forsjár­málið er rekið þá mun umbjóðandi minn afhenda barnið í samræmi við það samkomulag enda gangist þú í ábyrgð fyrir að umbjóðandi þinn virði samkomu­lagið sín megin.“ 

Í svari Katrínar segir: „Þetta bréf er alveg ótrúlegt að mínu mati. Í annarri setningunni kemur fram að maðurinn hafi séð sig nauð­beygðan til að halda barninu frá móðurinni þar sem hann efaðist um andlegt heil­brigði hennar. Í næstu setningu er gefin sú skýring að tilgangurinn með gjörðum mannsins beinist að því að tryggja jafna umgengni; þ.e. viku/viku sem umbjóðandi minn hefur verið andsnúinn. Sum sé, það er í lagi að beita þeim úrræðum að neita að skila barni á lögheimili sitt, halda því frá móður sinni og leikskóla til að ná sínu fram í deilu um umgengni! Er þetta mat lögmannsins?“ Stúlkan var hjá pabba sínum allt þar til bráðabirgða­dómssátt var gerð þann 12. maí 2010. Snemma árs 2011 fékk svo móðirin fulla forsjá yfir barninu en áfram var deilt um umgengni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðju­samstarfi en myndaði atkvæða­blokk með Sjálfstæðis­flokknum

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins, sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálfstæðis­flokknum og Miðflokknum af praktískum ástæðum. „Framkvæmdar­stjóri borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sendi fyrir hönd allrar stjórnar­andstöðunnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæjar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæjar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borgar­stjóra New York og London. Báðir bæjar­stjórar eru á hærri launum en forsætis­ráðherra. Laun bæjar­stjóra Kópavogs hækkuðu um tæp 58% á kjör­tímabilinu og laun bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar um 36%. „Allt óréttlæti mun kalla á meiri óánægju,“ segir formaður stéttar­félagsins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár