Efling sendir frá sér harðorða yfirlýsingu um „áróður ASÍ“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, sakar for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands, um að tala eins og Samtök atvinnu­lífs­ins.

Efling sendir frá sér harðorða yfirlýsingu um „áróður ASÍ“
Sólveig Anna Jóns­dóttir Var nýverið kjörin for­maður Eflingar og bar sig­urð­orð af lista stjórnar félags­ins. Mynd: Pressphotos

 Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar stétt­ar­fé­lags, sakar Alþýðu­sam­band Íslands um „áróður“ í yfir­lýs­ingu sem send var til fjöl­miðla í dag. Í yfir­lýs­ing­unni er full­yrt að Alþýðu­sam­bandið taki sér stöðu með Samtökum atvinnu­lífs­ins og tali gegn kröfum um auknar kjara­bætur launa­fólks, sem Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, og Sólveig Anna, hafa talað fyrir, en Ragnar boð­aði meðal ann­ars verk­föll í ræðu sinni á alþjóða­degi verka­lýðs­ins 1. maí síð­ast­lið­inn.

Gylfi Arn­björns­sonForseti Alþýðu­sam­bands­ins hefur verið gagn­rýndur harð­lega af for­manni VR og for­manni Eflingar fyrir lin­kind í kjara­bar­áttu.

Sólveig segir í yfir­lýs­ing­unni að þar sem „hin ríku verði rík­ari og rík­ari á meðan þau sem til­heyra lægri stéttum skuli vinna alla ævi án þess þó að geta nokkru sinni um frjálst höfuð strokið þegar kemur að efna­hags­legri afkomu“ hafi verka­fólk „fengið nóg“ og „látið í sér heyra“, en þá hafi Alþýðu­sam­band Íslands komið af stað aug­lýs­inga­her­ferð, fjár­magn­aða af laun­þegum, sem styðji mál­stað Samtaka atvinnu­lífs­ins og atvinnu­rek­enda.

„En þá bregður svo stór­kost­lega und­ar­lega við að í stað þess að gleðj­ast og fylkja sér að baki kröfum um að reynt verði að vinna að efna­hags­legu rétt­læti á hinu stétt­skipta Íslandi ákveður for­ysta ASÍ að taka afstöðu gegn öðrum tals­mönnum verka- og lág­launa­fólks og senda frá sér áróð­ursefni sem aug­ljós­lega er beint gegn þeim háværu kröfum um jöfnuð sem hér hafa hljó­mað, áróð­ursefni sem dregur upp þá mynd að best sé fyrir allt þjóð­fé­lagið að raddir þeirra sem til­heyra lægri stétt­unum þagni alveg, áróð­ursefni sem málar þá mynd af sam­tím­anum að krónur skipti ekki lengur neinu máli, aðeins svo­kall­aður kaup­máttur, en skautar alveg fram hjá spurn­ing­unni sem aug­ljós­lega hlýtur að vakna hjá hinum vinn­andi stéttum við áhorfið: Ef krónur skipta engu máli, hvernig stendur þá á því að hin auð­ugu virð­ast aldrei nokkurn tím­ann fá nóg og þurfa ótrú­legar hrúgur af þeim, svo stórar að þeim end­ist ekki ævin til að eyða þeim?“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Eft­ir­far­andi er yfir­lýs­ing Sól­veigar Önnu í heild sinni.

„Nú hefur verka- og láglaunafólk fengið nóg“

Yfirlýsing Eflingar í heild sinni, undirrituð af Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni

Það hefur varla farið fram hjá mörgum að kjara­samn­inga­vetur stendur fyrir dyrum. Verka- og lág­launa­fólk bindur nú vonir við að loks­ins sé komið að þeim. Að þau fái loks­ins að njóta hlut­deildar í því mikla góð­æri sem ríkir um þessar mundir en hingað til hefur það þurft að sætta sig við mylsnu á meðan aðrir skammta sjálfum sér óhóf­lega af veislu­borð­inu, aftur og aftur.

Á Stór-Reykja­vík­ur­svæð­inu ríkir hússnæð­iskreppa sem hefur gert það að verkum að óvenju grimmi­leg útgáfa af lög­mál­inu um fram­boð og eft­ir­spurn ræður lífi fjölda fólks sem nauð­beygt þarf að leigja hús­næði af fjár­magns­eig­endum og leigu­fé­lögum. Á hverjum degi ber­ast sögur af algjör­lega frá­leitum upp­hæðum sem fólki er gert að greiða fyrir þau sjálf­sögðu mann­rétt­indi að hafa aðgang að hús­næði. Samkvæmt nýjum tölum frá Íbúða­lána­sjóði hefur húsa­leiga hækkað um 82% frá árinu 2011 og þau sem til­heyra lág­tekju­hópum greiða nú um helm­ing ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í húsa­leigu. Aðflutt verka­fólk þarf að sætta sig við að búa í ósam­þykktu íbúð­ar­hús­næði, kytrum og gámum, jafn­vel fjöl­skyldu­fólk, en greiða þó stórar upp­hæðir fyrir.

Við búum í sam­fé­lagi gríð­ar­legrar stétta­skipt­ingar. Lág­launa­fólki er gert að sætta sig við ráð­stöf­un­ar­tekjur sem ekki duga til að láta hlut­ina ganga upp frá einum mán­að­ar­mótum til næstu og þarf því m.a. að leita á náðir smá­lána­fyr­ir­tækja til að eiga fyrir nauð­synjum. Á sama tíma fá þau sem til­heyra hátekju­hópum úthlutað trylltum launa­hækk­unum, jafn­vel aft­ur­virkum um mörg ár. Stórir hópar sem til­heyra hefð­bundnum kvenna­stéttum þjást vegna sví­virði­legrar lág­launa­stefnu sveit­ar­fé­lag­anna sem gerir það að verkum að til þess eins að kom­ast af þurfa þessar konur að vinna hrika­lega langa daga, oft í fleiri en einni vinnu. Það er stað­reynd í íslensku sam­fé­lagi að sífellt stækk­andi hópur fólks gengur fram af sér með vinnu, vegna þess að það ein­fald­lega hefur ekki val um annað. Stór hópur kvenna er sendur í end­ur­hæf­ingu á ári hverju vegna álags og vinnu­þræl­dóms. Einnig benda nýjar rann­sóknir til þess að stétta­skipt­ing fari vax­andi innan skóla­kerf­is­ins, þar sem börn úr verka­manna­fjöl­skyldum geta ekki notið áhyggju­lausrar æsku, sem er auð­vitað réttur allra barna. Þau upp­lifa mik­inn aðstöðumun þegar kemur að mögu­leikum í námi sem og aðgengi að efn­is­legum gæðum.

Samkvæmt rann­sóknum Stefáns Ólafs­sonar og Arnaldar Sölva Krist­jáns­sonar sem fjallað er um í bók­inni Ójöfn­uður á Íslandi kemur í ljós að efna­hags­leg mis­skipt­ing hefur auk­ist síðan á síð­asta ára­tug tutt­ug­ustu ald­ar­innar, þegar nýfrjáls­hyggjan hóf inn­reið sína í íslenskt þjóð­fé­lag. Þessi sam­fé­lags­lega óheilla­þróun, sem stutt­lega dró úr í kjöl­far efna­hags­hruns­ins, er aftur komin á kreik, enda hefur ekki ríkt póli­tískur vilji til að stöðva hana. Þvert á móti. Í íslensku sam­fé­lagi er stað­reyndin því þessi og þetta vita þau sem strita til að hafa í sig og á: Hin ríku verða rík­ari á meðan þau sem til­heyra lægri stéttum skulu vinna alla ævi án þess þó að geta nokkru sinni um frjálst höfuð strokið þegar kemur að efna­hags­legri afkomu.

Nú hefur verka- og lág­launa­fólk fengið nóg. Það hefur tekið að láta í sér heyra. Það hefur kosið til for­ystu í sínum verka­lýðs­fé­lögum fólk sem hefur heitið því að láta kjör þess sig öllu varða í kom­andi kjara­samn­ingum. Það hafa vaknað vonir um að loks sé komið tæki­færi til að leið­rétta, með sjón­ar­mið rétt­lætis og jöfn­uðar að leið­ar­ljósi, óásætt­an­leg laun, órétt­látt skatt­kerfi og skelfi­lega vaxta- og skuld­pín­ingu fjár­mála­kerf­is­ins, svo dæmi séu tekin af þeim málum sem helst brenna á íslenskri alþýðu.

En þá bregður svo stór­kost­lega und­ar­lega við að í stað þess að gleðj­ast og fylkja sér að baki kröfum um að reynt verði að vinna að efna­hags­legu rétt­læti á hinu stétt­skipta Íslandi ákveður for­ysta ASÍ að taka afstöðu gegn öðrum tals­mönnum verka- og lág­launa­fólks og senda frá sér áróð­ursefni sem aug­ljós­lega er beint gegn þeim háværu kröfum um jöfnuð sem hér hafa hljó­mað, áróð­ursefni sem dregur upp þá mynd að best sé fyrir allt þjóð­fé­lagið að raddir þeirra sem til­heyra lægri stétt­unum þagni alveg, áróð­ursefni sem málar þá mynd af sam­tím­anum að krónur skipti ekki lengur neinu máli, aðeins svo­kall­aður kaup­máttur, en skautar alveg fram hjá spurn­ing­unni sem aug­ljós­lega hlýtur að vakna hjá hinum vinn­andi stéttum við áhorfið: Ef krónur skipta engu máli, hvernig stendur þá á því að hin auð­ugu virð­ast aldrei nokkurn tím­ann fá nóg og þurfa ótrú­legar hrúgur af þeim, svo stórar að þeim end­ist ekki ævin til að eyða þeim?

Ef skyn­semin hefur ráðið för í íslensku sam­fé­lagi, eins og haldið er fram í aug­lýs­ingu ASÍ, allt frá árinu 1990 (ein­hvers­konar ári Núll sam­kvæmt áróðri aug­lýs­ingaarms Alþýðu­sam­bands Íslands, þegar launa­fólk hætti að koma öllu í efna­hags­legt upp­nám með reglu­legu milli­bili með óábyrgri hegðun sinni og leyfði yfir­burða­gáf­uðum útreiknurum loks­ins að ráða för) hvernig stendur þá á því að haustið 2008, fyrir rétt tæpum ára­tug síðan, hrundi hér efna­hags­kerfið, með skelfi­legum afleið­ingum fyrir launa­fólk og þau skuldugu, afleið­ingum sem ekki enn hefur verið tek­ist á við með rétt­látum hætti?

Í kjöl­far þess að hafa horft á þá skammar­lega ein­föld­uðu og yfir­borðs­kenndu sýn á íslenskan veru­leika sem boðið er uppá í aug­lýs­ingu ASÍ vaknar einnig þessi spurn­ing: Hvernig er hægt að rétt­læta það að for­ysta ASÍ noti fjár­magn frá verka­lýðs­fé­lagi verka- og lág­launa­fólks, Eflingu, til þess að fram­leiða áróð­ursefni sem hefur þann aug­ljósa til­gang að reyna að grafa undan og tak­marka mögu­leik­ana á því að næsta vetur, þegar kemur að kjara­samn­ingum, verði loks­ins hlustað á kröfur vinnu­aflsins, að loks­ins verði til­lit tekið til lang­ana og þarfa okkar sem vinnum vinn­una á Íslandi, að kröfur okkar fái loks­ins að vega þyngra en kröf­urnar um stöð­ug­leika í lífi hinna ríku?

„Er svo komið að for­ysta ASÍ tekur án þess að skamm­ast sín undir þær ómann­eskju­legu kröfur sem auð­stéttin gerir til lág­tekju­hópanna“

Er svo komið að for­ysta ASÍ tekur án þess að skamm­ast sín undir þær ómann­eskju­legu kröfur sem auð­stéttin gerir til lág­tekju­hópanna, að hlut­skipti þeirra sé ein­göngu að vera þög­ult og stillt vinnu­afl á útsölu­verði, í sam­fé­lagi mis­skipt­ingar og sífellt vax­andi stétt­skipt­ingar þar sem jafn­vel hug­myndin um að eign­ast hús­næði er orðin að fjár­lægri draum­sýn?

Þegar mál­flutn­ingur ASÍ er far­inn að ríma svo ræki­lega við mál­flutn­ing for­kólfa fjár­magns­eig­enda og auð­kýf­inga að varla má greina í sundur hvor talar hverju sinni hlýtur verka­fólk að hug­leiða vel og lengi þá frá­leitu stað­reynd og spyrja í kjöl­farið: Er það ætlun þeirra sem stjórna til­veru okkar að ASÍ og SA renni saman í eitt risa­vaxið sam­fé­lags­legt stjórn­unar-fyr­ir­bæri?

Er ekki tíma­bært, þó ekki væri nema vegna hinna óboð­legu aðstæðna sem lág­launa- og verka­fólki er gert að lifa við í hinu stétt­skipta íslenska sam­fé­lagi, að þau innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem upp­lifa að sitt helsta hlut­verk sé að grafa mark­visst undan eðli­legum kröfum um góð lífs­kjör öllum til handa og sam­fé­lagi rétt­lætis og jöfn­uðar, eitt­hvað sem eitt sinn var upp­haf og endir bar­áttu verka­fólks, líti í eigin barm og hug­leiði hverra hags­muna þau eru að gæta?

Er ekki tíma­bært að for­ysta ASÍ sjái sóma sinn í því að halda sér til hlés þegar svo er komið að eng­inn sam­hljómur er lengur á milli hennar og verka­fólks?

Eða er virki­lega ætl­ast til þess að verka­fólk sætti sig við að búa í sam­fé­lagi þar sem ekki er aug­ljóst hvor talar; for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands eða tals­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Sólveig Anna Jóns­dóttir

Formaður Eflingar-stétt­ar­fé­lags 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár