Skagafjörður semur við vin stjórnarformanns sýndarveruleikasafns um nærri 200 milljóna framkvæmd

Harðar deilur hafa geisað í sveit­ar­stjórn Skaga­fjarðar út af fjár­mögnun sveit­ar­fé­lags­ins á sýnd­ar­veru­leika­safni á Sauð­ár­króki. Fjár­mögnun Skaga­fjarðar á verk­efn­inu er það mikil að Sam­keppn­is­eft­ir­litið þarf að taka afstöðu til þess á grund­velli EES-samn­ings­ins.

Skagafjörður semur við vin stjórnarformanns sýndarveruleikasafns um nærri 200 milljóna framkvæmd
Reyna að áætla kostnað sveit­ar­fé­lags­ins Meiri­hlut­inn í sveit­ar­stjórn Skaga­fjarðar hefur keyrt fjár­mögn­un­ina á sýnd­ar­veru­leika­safn­inu áfram. Stefán Vagn Stef­áns­son er odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður byggða­ráðs.

Sveit­ar­fé­lagið Skaga­fjörður semur við fyr­ir­tæki sem teng­ist eig­anda vænt­an­legs sýnd­ar­veru­leika­safns á Sauð­ár­króki, um að vera milli­liður við end­ur­bætur á hús­næð­inu við Aðalgötu 21 í bænum. Fyr­ir­tækið, Performa ehf., er skráð til heim­ilis í sama hús­næði og vænt­an­legur eig­andi safns­ins, Sýnd­ar­veru­leiki ehf. Performa ehf. er eins konar yfir­verk­taki fram­kvæmd­anna við sýnd­ar­veru­leika­safnið en þær eiga að kosta 189 millj­ónir króna sam­kvæmt samn­ingi milli þess og Sveit­ar­fé­lags­ins Skaga­fjarðar, sem Stundin hefur undir höndum. 

Stundin greindi frá opnun sýnd­ar­veru­leika­safns­ins í mars en í því verður hægt að upp­lifa bar­daga frá fyrstu öldum Íslands­byggðar, meðal ann­ars Örlygs­staða­bar­daga í Skaga­firði, í gegnum sýnd­ar­veru­leika­tækni. Sveit­ar­fé­lagið Skaga­fjörður leggur út í veru­legan kostnað vegna verk­efn­is­ins sem verður að stærstu leyti í eigu fjár­festa sem enn liggur ekki fyrir hverjir verða. Aðkoma Skaga­fjarðar að opnun sýnd­ar­veru­leika­safns­ins er mjög umdeild í sveit­ar­fé­lag­inu og hefur verið tek­ist á um hana ítrekað á fundum innan sveit­ar­stjórn­ar­innar. 

„Ég kem ekki að þessum samn­ingi að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár