Garpur slær í gegn

Margrét Krist­manns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Pfaff, á fiðr­ilda­hund­inn Garp. Saman heim­sækja þau íbúa á Landa­koti og Lyngási. Í þessum heim­sóknum kynn­ist Margrét hliðum á sam­fé­lag­inu sem voru henni áður huldar og öðl­ast víð­sýni að eigin sögn.

Garpur slær í gegn

Á tutt­ugu ára tíma­bili hefur Margrét átt nokkra hunda og var lengi búin að vita af heim­sókn­ar­vina­verk­efni Rauða kross­ins, þar sem hunda­eig­endur fara með hundana sína í heim­sóknir á stofn­anir. Henni fannst hún hins vegar aldrei vera með rétta hund­inn í slíkt verk­efni fyrr en hún eign­að­ist Garp, sem er þriggja og hálfs árs fiðr­ilda­hundur. „Þá fannst mér ég vera komin með hund sem yrði mjög góður í þetta. Mér fannst karakt­er­inn vera upp­lagður í þetta.“

Garpur er að sögn Mar­grétar ekta kjölturakki, hlýð­inn og góður en reyndar svo­lítið ör. „Hann er bara skemmti­legur hundur.“ Bæði hún og Garpur þurftu að fara á nám­skeið og í gegnum stuttan und­ir­bún­ing áður en þau gátu gerst heim­sókna­vinir. „Það var athugað hvort hann hlýddi þokka­lega og væri nokkuð með skap­gerð­ar­bresti. Ég þurfti að kynna mér sögu Rauða kross­ins og kynna mér heim­sókna­vina­starfið þannig að það tók nokkrar vikur að gera okkur klár …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár