„Hvers vegna kaus dómsmálaráðherra að brjóta lög til þess að Arnfríður gæti orðið landsréttardómari?“

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttar­lögmaður telur Landsrétt ekki uppfylla skilyrði mann­réttinda­sáttmála Evrópu um sjálf­stæðan og óháðan dómstól. Hér má lesa rökstuðn­inginn í heild.

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra skipaði Arnfríði Einars­dóttur sem dómara við Landsrétt samkvæmt eigin geðþótta, þvert á tillögu dómnefndar og í trássi við stjórnsýslulög og lög og reglur sem gilda um skipan dómara. Arnfríður getur því ekki með réttu talist handhafi dómsvalds og er ekki bær til þess að dæma mál í Lands­rétti. 

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­sonhæsta­rétt­ar­lög­maður

Þessu er haldið fram í greinar­gerð Vilhjálms H. Vilhjálms­sonar hæstaréttar­lögmanns í kærumáli fyrir Hæstarétti þar sem hann krefst þess að Arnfríður verði úrskurðuð vanhæf og gert að víkja sæti í máli skjólstæðings hans. Arnfríður og meðdómendur hennar í Lands­rétti höfnuðu kröfu Vilhjálms um að Arnfríður viki sæti þann 22. febrúar síðastliðinn, en Vilhjálmur kærði niður­stöðuna til Hæstaréttar.

Stundin fékk greinar­gerð varnar­aðila í málinu afhenta, en þar eru meðal annars færð rök fyrir því að Lands­réttur uppfylli ekki skilyrði um sjálf­stæðan og óháðan dómstól í skilningi mann­réttinda­sáttmála Evrópu.

Vitnað er til nýlegra dóma EFTA-dómstólsins og Evrópu­dómstólsins þessu til stuðnings og bent á að Evrópu­dómstóllinn ómerkti nýlega dóm vegna annmarka á máls­meðferð við skipun dómara. 

Brynjar Níelssonþing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Þá er rakið hvernig Brynjar Níelsson, eigin­maður Arnfríðar Einars­dóttur og flokks­félagi Sigríðar Andersen, ákvað skömmu eftir að Sigríður skipaði eiginkonu hans dómara með ólöglegum hætti að gefa Sigríði eftir oddvita­sætið á framboðs­lista Sjálfstæðis­flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi suður. 

„Eðli málsins samkvæmt hlýtur varnar­aðili meðal annars að spyrja sig eftir­farandi spurninga: Hvers vegna var dómsmála­ráðherra svo mikið í mun að skipa Arnfríði í embætti dómara við Landsrétt? Hvers vegna voru hæfustu umsækjendurnir samkvæmt ítarlegu og rökstuddu áliti dómnefndar ekki skipaðir? Hvers vegna kaus dómsmála­ráðherra að brjóta lög til þess að Arnfríður gæti orðið landsréttar­dómari?“ segir í greinar­gerð Vilhjálms.

Sigríður Andersendóms­mála­ráð­herra

„Þessum spurningum getur varnar­aðili vitaskuld ekki svarað með vissu að svo vöxnu máli en sú staðreynd að varnar­aðili má með réttu leiða hugann að þeim gerir það að verkum að ásýnd dómsins, hlutrænt séð, er ekki sú að hann sé sjálf­stæður.“

Þá bendir hann einnig á að ákæran í málinu var gefin út af embætti lögreglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu, en lögreglu­stjórinn á höfuð­borgar­svæðinu var skipaður í embætti af þáverandi dómsmála­ráðherra Sjálfstæðis­flokksins án undan­genginnar auglýsingar. Vísar Vilhjálmur einnig til frétta­flutnings af því hvernig Sigríður Björk Guðjóns­dóttir lögreglu­stjóri hefur áður verið skipuð í embætti án auglýsingar og notið velvildar hjá ráðherrum Sjálfstæðis­flokksins.

Hér að neðan má lesa rökstuðning og lagarök greinar­gerðarinnar í heild:

Sjálf­stæðir og óhlutdrægir dómstólar eru grunnstoð réttar­ríkisins. Forsenda þess að ekki verði efast um sjálf­stæði og óhlutdrægni dómstóla er að lögum og reglum sem gilda um skipan dómara sé fylgt til hins ýtrasta. 

Í stjórnar­skrá er kveðið á um að skipun dómsvalds verði eingöngu ákveðin með lögum og dómendur skuli í embættis­verkum sínum fara einungis eftir lögum. Tilgangurinn með þessum ákvæðum er að lögin ein ráði niður­stöðu dómsmála en ekki persónu­legir hagsmunir eða skoðanir viðkomandi dómara, hagsmunir ríkis­valdsins eða hagsmunir annarra einstaklinga eða fyrir­tækja. 

Það er sérstak­lega mikilvægt að tryggja sjálf­stæði dómstóla gagnvart framkvæmda­valdinu. Það að stjórn­málamenn, stjórn­málaflokkar, tiltekinn þing­meirihluti, sitjandi ríkis­stjórn eða einstakur ráðherra eigi hönk upp í bakið á ákveðnum dómurum grefur undan sjálf­stæði þeirra og getur með réttu veikt tiltrú almennings á dóms­kerfinu.

Það er því lykil­atriði að fagleg hæfni þeirra sem sækja um dómara­embætti ráði því hverjir veljast til dómara­starfa, en ekki stjórnmála­skoðanir og pólitísk tengsl viðkomandi umsækjanda eða geðþótti dómsmála­ráðherra. Að öðrum kosti er vegið að sjálf­stæði dómstóla, trausti almennings á dómstólum og rétti sakaðra manna til þess að fá úrlausn um ákæru á hendur sér fyrir sjálf­stæðum og óhlutdrægum dómstóli sem skipaður er með lögum sbr. 70. gr. stjórnar­skrár og 1. mgr. 6. gr. mann­réttinda­sáttmála Evrópu. 

Samkvæmt 59. gr. stjórnar­skrár verður skipun dóms­valdsins eigi ákveðin nema með lögum. Samkvæmt 2. málslið 1. mgr. 6. gr. mann­réttinda­sáttmála Evrópu skal skipan dómstóls ákveðin með lögum. Í þessu felst ekki einungis ófrávíkjanlegt skilyrði um það að almennar reglur um skipan dómsvalds séu skýrlega bundnar í settum lögum heldur einnig, og ekki síður, á sama hátt ófrávíkjanlegt skilyrði um að skipan dómara í hverju einstöku tilviki sé í samræmi við lög. Raunar má telja að hið fyrr­nefnda, áskilnaður um almennar reglur í settum lögum, væri lítils virði eitt og sér ef ekki fælist jafnframt í framan­greindum ákvæðum krafa um fylgni við öll viðeigandi lög og reglur í hverju og einu tilviki.

Af dómum Hæstaréttar í málum nr. 591/2017 og 592/2017, sem kveðnir voru upp 19. desember 2017, er ljóst að máls­meðferð við skipan Arnfríðar í embætti dómara við Landsrétt var ekki í samræmi við lög (sjá bls. 6 og 7 í dómum Hæstaréttar).  

Annars vegar var það sökum þess að dómsmála­ráðherra gerði ekki sjálf­stæða tillögu um skipan Arnfríðar í embætti eins og ráðherranum bar að gera lögum samkvæmt. Hins vegar vegna þess að máls­meðferð við mat á hæfni Arnfríðar var ófullnægjandi og í andstöðu við 10. gr. stjórnsýslu­laga. Í dómi Hæstaréttar er sérstak­lega tekið fram að máls­meðferð Alþingis hafi ekki verið til þess fallin að bæta úr þessum annmörkum. Máls­meðferðin í heild var því andstæð lögum. 

Máls­meðferðin við skipan Arnfríðar fól því bæði í sér brot á lögum nr. 50/2016 um dómstóla og stjórnsýslu­lögum nr. 37/1993. Þá var tillaga dómsmála­ráðherra um skipan Arnfríðar í embætti í andstöðu við hina óskráðu megin­reglu í íslenskum rétti að stjórn­valdi beri að skipa hæfasta umsækjandann. Af öllu framan­sögðu er ljóst að skipun Arnfríðar í embætti var ekki í samræmi við lög eins og er fortaks­laust skilyrði 59. gr. stjórnar­skrár og 2. málsliðar 1. mgr. 6. gr. mann­réttinda­sáttmála Evrópu. 

Samkvæmt 1. mgr. 70. gr. stjórnar­skrár ber öllum réttur til að fá úrlausn um ákæru á hendur sér fyrir refsiverða háttsemi með réttlátri máls­meðferð fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli. Samkvæmt 1. málslið 1. mgr. 6. gr. mann­réttinda­sáttmála Evrópu skal hver sá sem borinn er sökum um refsivert brot, eiga rétt til rétt­látrar máls­meðferðar fyrir sjálf­stæðum og óvilhöllum dómstóli. 

Í nýlegum evrópskum dóms­úrlausnum hefur verið fjallað um mikilvægi þess að réttra og lögmætra máls­meðferðar­reglna sé gætt við skipan dómara í embætti. 

Í ákvörðun EFTA-dómstólsins frá 14. febrúar 2017 í máli nr. E-21/2016 (bls 5, 16. gr.) kemur meðal annars fram að af kröfunni um sjálf­stæði og óhlutdrægni dómstóla leiði að gera verði strangar kröfur til þess að réttum máls­meðferðar­reglum sé fylgt við skipan dómara. Af ákvörðuninni má ráða að annmarki á máls­meðferð við skipun dómara hefði leitt til þeirrar niður­stöðu að dómurinn teldist ekki rétt skipaður ef ekki væri fyrir þá staðreynd að bætt var úr annmarkanum áður en ákvörðunin var tekin (bls. 6, 21. og. 22. gr.). 

Í dómi Evrópu­dómstólsins 23. janúar 2018 í máli nr. T-639/16 P (bls. 10, gr. 72., 73., 74., 75., 78. 79., og 80. gr.), þar sem meðal annars er vísað til ofan­greindrar ákvörðunar EFTA-dómstólsins og dómframkvæmdar mann­réttinda­dómstóls Evrópu, var ómerktur dómur sem kveðinn var upp af dómara við starfsmanna­dómstól banda­lagsins þar sem ekki hafði verið gætt réttra máls­meðferðar­reglna við skipan viðkomandi dómara. 

Sú ályktun verður dregin af þessum dómum að sé skipan dómara ólögmæt þá sé viðkomandi dómari ekki með réttu handhafi dómsvalds og dóms­úrlausnir dóms sem hann skipar dauður bókstafur. Með vísan til dóma Hæstaréttar í málum nr. 591/2017 og 592/2017 verður ekki annað séð en að fyrir liggi að sama myndi eiga við um dóm í máli varnar­aðila verði ekki fallist á kröfu hans um að Arnfríði verði gert að víkja sæti í málinu vegna vanhæfis. Er í því sambandi áréttað að varnar­aðili á skýran og ótvíræðan rétt á því að réttað sé í máli hans af hæfum, óvilhöllum og sjálf­stæðum dómstóli sem skipaður er samkvæmt lögum. 

Varnar­aðili byggir á því að þeir annmarkar sem voru á skipun Arnfríðar og þarf af leiðandi stöðu hennar við fyrir­huguð dómstörf í máli varnar­aðila samræmist ekki kröfum um rétt varnar­aðila til að fá úrlausn um ákæru á hendur sér fyrir sjálf­stæðum og óháðum dómstóli samkvæmt 1. mgr. 70. gr. stjórnar­skrár og 1. málslið 1. mgr. 6. gr. mann­réttinda­sáttmála Evrópu. 

Við mat á því hvort dómstóll uppfylli skilyrði um sjálf­stæði í skilningi mann­réttinda­sáttmála Evrópu þarf auk annarra atriða að kanna fyrir­komulag skipunar dómara við dómstólinn og í öðru lagi að leggja mat á hvort dómstóll hafi almennt þá ásýnd að hann sé sjálf­stæður. Svo er ekki í máli varnar­aðila. enda skipaði dómsmála­ráðherra Arnfríði samkvæmt eigin geðþótta, þvert á tillögu dómnefndar og í trássi við stjórnsýslulög, megin­reglur laga um að velja bera hæfasta umsækjandann og lög og reglur sem gilda um skipan dómara. Arnfríður er því ekki með réttu handhafi dómsvalds og því ekki bær til þess að dæma mál varnar­aðila í Lands­rétti. 

Áður hefur verið vikið að því að það sé lykil­atriði fyrir sjálf­stæði dómstóla að fagleg hæfni þeirra sem sækja um dómara­embætti ráði því hverjir veljast til dómara­starfa, en ekki stjórnmála­skoðanir og pólitísk tengsl viðkomandi umsækjanda eða geðþótti dómsmála­ráðherra.

Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og flokks­bróðir dómsmála­ráðherra er eigin­maður Arnfríðar. Í aðdrag­anda síðustu Alþingis­kosninga, nánar tiltekið 30. september 2017, vék Brynjar úr fyrsta sæti á lista flokksins í Reykjavík suður fyrir dómsmála­ráðherra (nýtt skjal 3). Aðspurður um ástæður þess að hann gæfi eftir oddvita­sæti í Reykjavík sagði Brynjar meðal annars að hann hafi talið rétt að kona leiddi listann og dómsmála­ráðherra væri svo öflug kona (nýtt skjal 3). 

Nokkrum mánuðum áður, eða 11. janúar 2017, þegar verið var að mynda nýja ríkis­stjórn og ráðherraval Sjálfstæðis­flokksins lá fyrir hafði Brynjar lýst því yfir að hann væri ekkert sérstak­lega sáttur við að vera ekki ráðherra (nýtt skjal 5). 

Við sama tækifæri sagði Brynjar að hann vildi horfa til niður­stöðu kosninga þegar kemur að ráðherra­embættum og lýðræðið væri bara þannig að það hefði verið haldið prófkjöri og úr því hafi komið sú niður­staða að það væru fimm karlar og ein kona og bætti við að hann vildi bara að horfa til þess að menn virði niður­stöðu kosninga. 

Þegar þessi ummæli Brynjars eru höfð í huga vekur það furðu að hann hafi ákveðið að víkja úr oddvita­sæti Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík sem hann hafði verið kosinn til að skipa og gefa sætið eftir til dómsmála­ráðherra vegna þess að hann teldi rétt að kona skipaði fyrsta sæti listans. Með því varð ljóst að Brynjar yrði ekki ráðherra kæmi til þess að Sjálfstæðis­flokkurinn kæmi að myndun nýrrar ríkis­stjórnar sem síðar varð raunin. 

Hvað gerðist á þessum nokkrum mánuðum, þ.e. frá janúar til september 2017, sem varð til þess að Brynjar kúventi afstöðu sinni að eingöngu ætti að horfa til niður­stöðu kosninga við niður­röðun á framboðs­lista? 

Um það verður vitaskuld ekkert fullyrt en eitt af því sem sannarlega átti sér stað á þessu tímabili var að 29. maí 2017 gerði dómsmála­ráðherra það að tillögu sinni við Alþingi að Arnfríður, eiginkona Brynjars, yrði skipuð dómari við Landsrétt, ekki einungis þvert á álit dómnefndar heldur einnig án þess að sérstakt mat færi fram á hæfni Arnfríðar til þess að gegna embættinu. Eins áður hefur komið fram var Arnfríður skipuð í embætti dómara við Landsrétt 8. júní 2017. 

Eðli málsins samkvæmt hlýtur varnar­aðili meðal annars að spyrja sig eftir­farandi spurninga: 

1. Hvers vegna var dómsmála­ráðherra svo mikið í mun að skipa Arnfríði í embætti dómara við Landsrétt? 

2. Hvers vegna voru hæfustu umsækjendurnir samkvæmt ítarlegu og rökstuddu áliti dómnefndar ekki skipaðir? 

3. Hvers vegna kaus dómsmála­ráðherra að brjóta lög til þess að Arnfríður gæti orðið landsréttar­dómari? 

Þessum spurningum getur varnar­aðili vitaskuld ekki svarað með vissu að svo vöxnu máli en sú staðreynd að varnar­aðili má með réttu leiða hugann að þeim gerir það að verkum að ásýnd dómsins, hlutrænt séð, er ekki sú að hann sé sjálf­stæður. 

Þessu til viðbótar þá var ákæra í máli varnar­aðila gefin út af embætti lögreglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu 31. janúar 2017 en lögreglu­stjórinn á höfuð­borgar­svæðinu var skipaður í embætti af þáverandi dómsmála­ráðherra Sjálfstæðis­flokksins án undan­genginnar auglýsingar (nýtt skjal 7). 

Samkvæmt framan­greindu er ásýnd dómsins eins og hann er nú skipaður í máli varnar­aðila ekki sú að dómurinn sé sjálf­stæður eða nægilega óháður. Varnar­aðili hefur því réttmætar efasemdir um að réttindi hans samkvæmt nefndum ákvæðum stjórnar­skrár og mann­réttinda­sáttmála Evrópu séu tryggð. 

Að öllu þessu virtu eru fyrir hendi atvik eða aðstæður sem eru til þess fallnar að draga megi óhlutdrægni Arnfríðar með réttu í efa, sbr. g-lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Gerir því varnar­aðili þá kröfu að hún verði úrskurðuð vanhæf til þess að dæma í málinu og gert að víkja sæti, sbr. 1. mgr. 7. gr. sömu laga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár