„Er það trúverðugt að enginn ráðherra hafi vitað neitt öll þessi ár?“

Bjarni Bene­dikts­son segir frá­leitt að ætl­ast til þess að fjár­mála­ráð­herra viti um farma í ein­stökum flug­vélum íslenskra lög­að­ila milli landa.

„Er það trúverðugt að enginn ráðherra hafi vitað neitt öll þessi ár?“

„Mér finnst rétt að spyrja hæst­virtan fjár­mála­ráð­herra: Hvenær vissi hann um þessa flutn­inga, og þar sem þetta eru umfangs­miklir flutn­ingar, er það trú­verð­ugt að eng­inn ráð­herra hafi vitað neitt í öll þessi ár?“

Þannig spurði Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi á ell­efta tím­anum þegar hann átti orða­stað við Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra um vopna­flutn­inga Atlanta og leyf­is­veit­ingar íslenskra stjórn­valda. 

Bjarni sagði Loga fara með „raka­lausan áburð“ og sagði frá­leitt að ætl­ast til þess að hann sem fjár­mála­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra hefði átt að vera kunn­ugt um vopna­flutn­ing­ana. „Ég átta mig ekki á því hvað hátt­virtur þing­maður á við þegar hann segir að ég sem fjár­mála­ráð­herra, eftir atvikum for­sæt­is­ráð­herra, hafi átt að vita hvaða farmur var í ein­stökum flug­vélum íslenskra lög­að­ila í útlöndum milli landa. Hvert er hátt­virtur þing­maður eig­in­lega kom­inn?“ sagði Bjarni. „Heldur hann virki­lega að fjár­mála­ráð­herra sé ða fara yfir farm­skrárnar? Þetta er algjör­lega raka­laus áburður sem er hér færður fram og aug­ljóst að það hefur aldrei verið á mínu borði að fara yfir þau stjórn­sýslu­legu atriði sem þarf að gá að í þessum málum.“ 

Kallaði Bjarni eftir mál­efna­legri umræðu um alvar­leg mál á borð við vopna­flutn­inga til stríðs­hrjáðra landa og gagn­rýndi Loga fyrir „ómerki­legt skít­kast“. 

Logi gaf lítið fyrir þau orð. „Þegar mál eru falin í eitt skipti getum við kallað það slys. Í annað skipti eru það hugs­an­lega slæ­leg vinnu­brögð en þegar það ger­ist í þriðja, fjórða og fimmta skipti þá heita það vinnu­reglur. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur sann­ar­lega sýnt hverjar hans vinnu­reglur eru þegar kemur að gögnum sem honum finnst ekki eiga að koma fyrir alþjóð og geti komið flokknum illa,“ sagði hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Vopnaflutningar

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár