Steingrímur segir forseta Alþingis ábyrga fyrir leyndinni um akstursgjöldin

Stein­grímur J. Sigfússon vill ekki skella skuldinni fyrir lítilli upplýsinga­gjöf um aksturs­gjöld þingmanna á skrif­stofu Alþingis. Miðað við svar Steingríms þá er það forseti Alþingis og forsætis­nefnd sem hafa markað upplýsinga­stefnu Alþingis í gegnum tíðina. Svör skrif­stofu Alþingis við spurningum Stundarinnar um aksturs­gjöldin í fyrra löttu þingmenn frá því að veita blaðinu upplýsingar.

Ekki við Helga að sakast
Ekki við Helga að sakast Stein­grímur J. stillir akst­urs­gjalda­mál­inu upp þannig að ekki sé við skrif­stofu Alþingis og Helga Bern­ód­us­son að sakast að þessar upp­lýs­ingar hafi ekki legið fyrir. Mynd: Pressphotos

Stein­grímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, telur að fjöl­miðlar eigi ekki að sakast við skrif­stofu Alþingis út af þeirri leynd sem hvílt hefur yfir aksturs­gjöldum til þingmanna í gegnum árin. Forseti Alþingis bendir á að það séu forseti Alþingis og forsætis­nefnd sem ákveði stefnuna í upplýsinga­málum Alþingis – hvaða upplýsingar um starfsemi þingsins eigi og megi veita og hvaða upplýsingar ekki – hverju sinni og að skrif­stofa Alþingis sé í raun bara að fylgja þeirri stefnu sem þessir aðilar marka. 

Svar Steingríms undir­strikar enn að það séu flokks­pólitískar ákvarðanir hverju sinni, jafnvel skoðanir eða heimssýn forseta Alþingis að stóru leyti, hvaða upplýsingar um starfsemi þjóð- og löggjafar­þings Íslendinga megi opinbera til fjölmiðla og almennings. Eins og kunnugt er þá eru Alþingi og stofnanir þingsins undan­þegnar ákvæðum upplýsinga­laga og því gilda engar formlegar reglur um upplýsinga­gjöf um Alþingi.

Þetta kemur fram í svari frá Steingrími við fyrir­spurn Stundarinnar um hvað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Fréttir

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

Forsætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Friðriksson hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk endur­greiddan aksturs­kostnað langt umfram það sem reglur um þingfarar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vísaði forsætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin komist að þeirri niður­stöðu að Þórhildur Sunna hafi brotið siða­reglur.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár