Þingmaður sem rekur kúabú fer fyrir samráðshópi um endurskoðun búvörusamninga

Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fer fyrir hópnum sem fjallar meðal ann­ars um starfs­skil­yrði og rík­is­styrki til kúa­bænda. Hann stundar sjálfur búrekstur sam­kvæmt hags­muna­skrá Alþingis.

Þingmaður sem rekur kúabú fer fyrir samráðshópi um endurskoðun búvörusamninga
Haraldur Bene­dikts­son Fyrr­ver­andi for­maður Bænda­sam­tak­anna og núver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: xd.is

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur skipað Harald Bene­dikts­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Bryn­hildi Pét­urs­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Neyt­enda­sam­tak­anna, sem for­menn sam­ráðs­hóps um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. 

Við gerð búvöru­samn­inga er meðal ann­ars samið um starfs­skil­yrði kúa­bænda og rík­is­styrki vegna naut­gripa­ræktar. Haraldur er bóndi á Vestri-Reyni og rekur þar kúabú ásamt eig­in­konu sinni. Hann var for­maður Bænda­sam­taka Íslands um ára­bil, en fram kemur í hags­muna­skrá hans á vef Alþingis að hann stundi búrekstur, sitji í stjórn Búhölds ehf. sem sér um leigu á land­bún­að­ar­vélum og tækjum, stjórn Jóns Hregg­viðs­sonar ehf. þar sem hann eigi helm­ings­hlut og í stjórn Land­bún­að­ar­safns Íslands, til­nefndur af Bænda­sam­tök­unum. 

Alls eiga átta full­trúar sæti í sam­ráðs­hópnum um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins að hópnum hafi verið sett erind­is­bréf sem taki mið af þeim umræðum sem fram fóru á Alþingi þegar gild­andi búvöru­lög voru sam­þykkt og þeim áherslum sem fram koma í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur. 

„Við skipan hóps­ins hef ég lagt ríka áherslu á að veita sjón­ar­miðum neyt­enda aukna vigt við end­ur­skoðun búr­vöru­samn­ing­anna, m.a. með því að skipa full­trúa Neyt­enda­sam­tak­anna sem annan for­manna hóps­ins,“ er haft eftir Krist­jáni Þór á stjórn­ar­ráðsvefnum. „Þessi fjöl­breytti hópur hefur fulla burði til að ná víð­tæku sam­komu­lagi um til­lögur sem geta orðið grund­völlur að  öfl­ugum atvinnu­rekstri í land­bún­aði og ekki síður skapað meiri sátt um upp­bygg­ingu íslensks land­bún­aðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár