Margt helsta áhrifafólk landsins fagnaði með Davíð

Fjár­mála­ráð­herra, borg­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og æðsti stjórn­andi Kaup­fé­lags Skag­firð­inga voru á með­al gesta Dav­íðs Odds­son­ar, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, á sjö­tugsaf­mæli hans. Dav­íð sagði í ræðu sinni að eina blað­ið á Ís­landi sem hægt væri að lesa, væri Morg­un­blað­ið.

Margt helsta áhrifafólk landsins fagnaði með Davíð
Davíð Oddsson Hér á fundinum þar sem hann boðaði til forsetaframboðs árið 2016. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mikill fjöldi áhrifafólks í íslensku samfélagi fyrr og nú heiðraði Davíð Oddsson, ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóra, í sjötugsafmæli hans í húsnæði Morgunblaðsins á Hádegismóum í gær. 

Fjallað um afmæli ritstjóransSmartland á Mbl.is fjallar um afmæli ritstjóra Morgunblaðsins. Á myndunum sést Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræða málin við Agnesi Bragadóttur, blaðamann Morgunblaðsins.

Meðal gesta Davíðs voru Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagafjarðar, Eyþór Arnalds, frambjóðandi í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Sigríður Andersen dómsmálaráðherra, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Ingvi Hrafn Jónsson, fyrrverandi sjónvarpsstjóri ÍNN, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarkona Bjarna Benediktssonar, Gunnlaugur Sigmundsson, faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, auk fjölda fjölmiðlafólks sem starfar fyrir Árvakur. Þá voru viðstaddir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, og Ólafur F. Magnússon, einnig fyrrverandi borgarstjóri.

Í ræðu sinni gagnrýndi meðritstjóri Davíðs, Haraldur Johannessen, núverandi borgaryfirvöld fyrir að hugsa ekki um hag skattgreiðenda, eins og Davíð. 

Fjallað er um afmæli Davíðs á mbl.is og myndir birtar af gestunum. 

Fram kemur á Vísi.is að Davíð hefði í ræðu sinni sent öðrum íslenskum prentmiðlum með þeim orðum að ekkert blað væri hægt að lesa á Íslandi annað en Morgunblaðið. „Reyndar er ekkert annað blað í landinu, satt best að segja. Ekki sem hægt er að lesa. Það er til blað sem vitað er að einhverjir fletti en ég hef ekki enn hitt neinn sem les það,“ sagði hann.

Sama dag hafði Morgunblaðið birt langa lofgrein um Davíð og störf hans. Höfundur greinarinnar er Hannes Hólmsteinn Gissurarson, sem leggur nú lokahönd á skýrslu um erlenda áhrifaþætti íslenska efnahagshrunið, en niðurstaða hans í greininni stangaðist í meginatriðum á við niðurstöðu Rannsóknarskýrslu Alþingis vegna hruns bankanna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Funduðu með einni umdeildustu hugveitu heims
2
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Fund­uðu með einni um­deild­ustu hug­veitu heims

Þing­menn Mið­flokks­ins fund­uðu með Her­ita­ge Foundati­on, hug­veit­unni sem samdi hina um­deildu áætl­un Proj­ect 2025 um end­ur­skipu­lagn­ingu banda­ríska rík­is­ins. Sig­ríð­ur And­er­sen, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, seg­ir erfitt að fá áheyrn, því hafi flokk­ur­inn leit­að til ráð­gjafa Nig­el Fara­ge til þess að tengj­ast banda­rísk­um stjórn­mál­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
2
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana
6
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Huldu­fé bak við fund Sig­mund­ar Dav­íðs og Re­públi­kana

Jane Mayer, blaða­mað­ur hjá The New Yor­ker, seg­ir millj­arða­mær­inga fjár­magna sam­tök­in Turn­ing Po­int sem borg­uðu Norð­ur­landa­ferð hóps Re­públi­kana að hitta formann Mið­flokks­ins og fleira áhrifa­fólk af hægri vængn­um. Hún hef­ur rann­sak­að net Char­les Koch sem nær til Ís­lands. Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son hef­ur ekki svar­að því hver greiddi ferð hans.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
5
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
6
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár