Skólakrakkar búsettir á lögheimili Sigmundar Davíðs

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefur flutt lög­heim­ili sitt í hús sem leigt er náms­mönnum, en óljóst er hvort hann muni búa þar, þótt lögum sam­kvæmt beri fólki að skrá lög­heim­ili á dval­ar­stað.

Skólakrakkar búsettir á lögheimili Sigmundar Davíðs
Nýtt lög­heim­ili Sig­mundar Davíðs Námsmenn búa í hús­inu og óljóst hvort Sig­mundur muni búa þar. Mynd: Já.is

Eigandi nýs lög­heim­ilis Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, segir að Sig­mundur hafi „þurft“ lög­heim­ili á Akureyri, en ekki liggi fyrir hvort hann muni búa þar. 

Nýtt lög­heim­ili Sig­mundar er nú leigt út til náms­manna og ekki er rými fyrir hann og eig­in­konu hans þar, þótt þau hafi skráð lög­heim­ili sitt þar. 

Sig­mundur hefur verið gagn­rýndur fyrir að skrá falskt lög­heim­ili að Hrafna­björgum III í Jökuldal, þrátt fyrir að hafa þar enga dvöl. Hann flutti nýlega lög­heim­ili sitt og eig­in­konu sinnar, Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, í Aðal­stræti 6 á Akureyri, í hús frá 1845 í eigu Gerðar Jóns­dóttur, stofn­fé­laga í Mið­flokknum og fyrr­ver­andi for­manns Félags fram­sókn­ar­kvenna.  

Gagnrýndur fyrir falskt lögheimili

Meðal þeirra sem gagn­rýnt hafa falska lög­heim­il­is­skrán­ingu Sig­mundar eru Pétur Ein­ars­son, lög­fræð­ingur og fram­bjóð­andi Flokks fólks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem kærði Sigmund Davíð fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar á grund­velli þess að hann bryti lög með því að gefa „falskar upp­lýs­ingar til Hagstofu Íslands um lög­heim­ili sitt og fjöl­skyldu sinnar“. „Þar hefur kærði aldrei búið né haft þar starfs­stöð og er eig­andi umræddrar eignar og nágrannar til vitnis um það,“ sagði í kærunni.

Sig­mundur ákvað fyrir kosn­ing­arnar 2013 að bjóða sig fram í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Sig­mundur var búsettur í Selja­hverf­inu í Breið­holti. Sig­mundur kaus að finna sér heim­ili í kjör­dæm­inu og varð fyrir val­inu 100 fer­metra sveita­hús með torfein­angrun í Jökuldal á jaðri hálend­is­ins. „Sig­mundur Davíð hefur nú bara gist hér eina nótt þótt hann sé skráður til heim­ilis hér,“ sagði eig­andi húss­ins í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Samkvæmt Vísi.is bjó Sig­mundur Davíð þvert á móti í „glæsi­húsi“ í Garðabæ.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­sonHefur verið með rangt skráð lög­heim­ili frá árinu 2013.

Lög kveða á um búsetu á lögheimili

Í fyrstu grein laga um lög­heim­ili segir: „Lög­heim­ili manns er sá staður þar sem hann hefur fasta búsetu.“ Þá segir í lög­unum að sé lög­heim­ili vafa­mál, beri að skrá það þar sem við­kom­andi dvelur meiri­hluta árs: „Leiki vafi á því hvar telja skuli að föst búseta manns standi, til dæmis vegna þess að hann hefur bæki­stöð í fleiri en einu sveit­ar­fé­lagi, skal hann eiga lög­heim­ili þar sem hann dvelst meiri hluta árs.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Þjóðskrá Íslands þrýstir stofn­unin mark­visst á fólk að skrá sig á réttan stað. Ekki náð­ist í lög­fræð­inga Þjóð­skrár, en almennur starfs­maður Þjóð­skrár sagði í sam­tali við Stundina að skýrt væri hvar lög­heim­ili ætti að vera. „Samkvæmt lög­heim­il­is­lög­unum eru víst engin við­ur­lög við þessu, en þar sem við erum alltaf að reyna að hafa þjóð­skrána sem réttasta reynum við að ýta á eftir fólki með að hafa þetta rétt, að fólk skrái sig á réttan stað. Þú átt að vera skráður með lög­heim­ili þar sem þú hefur sann­ar­lega búsetu.“

Miðað við almenn svör Þjóð­skrár má gera ráð fyrir því að stofn­unin hafi reynt að fá Sigmund til að skrá sig til rétts heim­ilis.

Ekki ljóst hvort Sigmundur muni búa á lögheimili sínu

Gerður Jóns­dóttir, eig­andi lög­heim­ilis Sig­mundar, segir að það sé rangt, sem hefur komið fram hjá Rík­is­út­varp­inu, að eng­inn hafi búið í hús­inu síð­ustu ár. „Það var nú ekki rétt hjá RÚV. Það er íbúð í hús­inu og hefur verið búið í því síð­ustu tvö árin.“

Þannig að það er upp­tekið? „Það er nátt­úr­lega upp­segj­an­legt, ég er með upp­segj­an­lega leigj­endur. Þetta eru bara skólakrakkar. Ég hef alltaf haft þetta frekar laust.“

„Það eru miklu fleiri sem eru með lög­heim­ili og búa ekk­ert á þeim stað.“

Lög gera ráð fyrir því að Sig­mundur eigi að skrá lög­heim­ili sitt þar sem hann sann­ar­lega býr, en ekki er ljóst hvort stefnt sé að því.

„Ég veit það ekki,“ segir Gerður. „Þetta var bara eitt­hvað sem þurfti að gera. Og síðan þarf að taka stöð­una. Þetta kom nú bara til ósköp fljótt. Það er svo sem ekk­ert ákveðið ennþá. Það verður bara tekin staðan eftir ára­mótin, þegar það fer aðeins að hægj­ast um,“ segir Gerður. Hún stað­festir því að ekki sé pláss fyrir Sigmund á lög­heim­ili hans. „Ekki um jólin. Hann heldur örugg­lega ekki jólin þarna.“

Segir fleiri með rangt skráð lögheimili

Gerður vill ekki taka fram hvort Sig­mundur hafi beðið hana að fá að skrá lög­heim­ili sitt í hús­næði hennar eða hvort hún hafi boðið honum það. „Bauð ég honum það? Mér finnst það ekki skipta máli. Hann þurfti að hafa aðsetur hérna á Akureyri og ég veit ekki nema kannski hann flytji hingað. Það er svo sem allt í skoðun. Við erum góðir kunn­ingjar,“ segir hún.

Gerður segir að Sig­mundur sé ekki sá eini sem er með skráð lög­heim­ili þar sem hann dvelur hvorki né hefur dvalið. „Það eru miklu fleiri sem eru með lög­heim­ili og búa ekk­ert á þeim stað. Þannig að það er ekk­ert ein­stakt.“  

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár