Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Hæstiréttur: Sigríður braut lög við skipun dómara og ríkið þarf að greiða miskabætur

Sig­ríð­ur Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra braut gegn 10. gr. stjórn­sýslu­laga þeg­ar hún hand­valdi dóm­ara í Lands­rétt og gekk fram­hjá hæf­um um­sækj­end­um.

Hæstiréttur: Sigríður braut lög við skipun dómara og ríkið þarf að greiða miskabætur

Hæstiréttur Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra hafi brotið lög við skipun dómara við Landsrétt.

Þetta er í samræmi við fyrri niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, en Hæstiréttur dæmir jafnframt lögmönnunum Ástráði Haraldssyni og Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni 700 þúsund krónur hvorum í miskabætur vegna málsins. Ástráður og Jóhannes voru í hópi umsækjenda sem gengið var framhjá við skipun dómara í Landsrétt þrátt fyrir að vera á meðal 15 hæfustu umsækjenda samkvæmt mati hæfnisnefndar.

Málsmeðferð ráðherra var á skjön við 10. gr. stjórnsýslulaga um rannsóknarreglu stjórnvalda í ljósi þess að rannsókn hennar á hæfni umsækjenda var ófullnægjandi.

Af þessu leiddi jafnframt að „annmarki var á meðferð Alþingis á tillögu dómsmálaráðherra þar sem ekki var bætt úr annmörkum á málsmeðferð ráðherra þegar málið kom til atkvæðagreiðslu á Alþingi“ segir í dómum Hæstaréttar. 

Jóhannes Rúnar og Ástráður gerðu kröfu um miskabætur og skaðabætur á þeim grundvelli að með háttsemi sinni hefði ráðherra vegið að starfsheiðri þeirra og orðspori. 

„Þótt ekkert sé komið fram í málinu um að ráðherrann hafi hagað gerðum sínum sérstaklega til að beina meingerð að æru eða persónu áfrýjanda höfðu ákvarðanir hennar eigi að síður þær afleiðingar að bættur var hlutur einhvers úr hópi fjögurra annarra umsækjenda sem dómnefnd hafði raðað lægra en áfrýjanda,“ segir í dómum Hæstaréttar. 

„Þótt ráðherrann hafi ekki í tengslum við þetta látið orð falla til að vega að persónu eða æru áfrýjanda verður ekki fram hjá því litið að henni mátti vera ljóst að þessar gerðir gætu að ófyrirsynju bitnað á orðspori áfrýjanda og orðið honum þannig að meini. Þrátt fyrir þetta gekk ráðherrann fram án þess að skeyta nokkuð um þessa augljósu hættu. Að þessu virtu verður að líta svo á að fullnægt sé skilyrðum b. liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga til að dæma áfrýjanda miskabætur úr hendi stefnda, sbr. til hliðsjónar áðurnefndan dóm Hæstaréttar í máli nr. 412/2010. Þær miskabætur eru hæfilega ákveðnar 700.000 krónur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an þeir dæmdu Arn­fríð­ar­mál

Arn­fríð­ur Ein­ars­dótt­ir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveim­ur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku af­stöðu um hæfi henn­ar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og mál­ið var til með­ferð­ar. Hinir þrír sem vald­ir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an Hæstirétt­ur tók fyr­ir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Forsprakki útifundar játaði fjárdrátt á leikskólanum Klettaborg
2
Fréttir

Forsprakki úti­fund­ar ját­aði fjár­drátt á leik­skól­an­um Kletta­borg

Sig­fús Að­al­steins­son, stofn­andi hóps­ins Ís­land - þvert á flokka, sem stend­ur fyr­ir úti­fund­um um hæl­is­leit­end­ur, ját­aði á sig fjár­drátt frá leik­skól­an­um Kletta­borg þeg­ar hann var for­stöðu­mað­ur þar. Hann vill ekki dæma hvort brot af því tagi séu nógu al­var­leg til að inn­flytj­end­ur sem gerð­ust sek­ir um þau ætti að senda úr landi.
Drengir kvörtuðu undan kennara og var meinað að sitja kennslustundir
5
Úttekt

Dreng­ir kvört­uðu und­an kenn­ara og var mein­að að sitja kennslu­stund­ir

Tólf ára gaml­ir dreng­ir leit­uðu til skóla­stjóra vegna meints of­beld­is af hálfu kenn­ara. Í kjöl­far­ið var þeim mein­að að sitja kennslu­stund­ir hjá kenn­ar­an­um. Ann­ar baðst af­sök­un­ar eft­ir tvær vik­ur og fékk þá að koma aft­ur í tíma. Hinn sætti út­skúf­un í tvo mán­uði, áð­ur en skól­an­um var gert að taka dreng­inn aft­ur inn í tíma. For­eldr­ar drengs­ins segja kerf­ið hafa brugð­ist barn­inu og leit­uðu að lok­um til lög­reglu.
Fjölskyldurnar sem eiga fiskana í sjónum
6
GreiningSjávarútvegsskýrslan

Fjöl­skyld­urn­ar sem eiga fisk­ana í sjón­um

Inn­an við tíu fjöl­skyld­ur eiga og stýra stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­um lands­ins. Þau fyr­ir­tæki sem skráð hafa ver­ið á mark­að eru enn und­ir stjórn, og að uppi­stöðu í eigu, þeirra ein­stak­linga sem fengu gjafa­kvóta. Fjár­fest­ing­ar eig­enda út­gerð­anna í öðr­um og óskyld­um grein­um nema tug­um millj­arða og teygja sig í maj­ónes­fram­leiðslu, skyndi­bitastaði, trampólín­garða og inn­flutn­ing á bleyj­um og síga­rett­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár