Hafið er bæði fallegt og grimmt

Þröstur Leó Gunnarsson ætlaði að hætta að leika og fór á sjóinn. Þá sökk báturinn og hann var atvinnu­laus, þar til honum var boðið hlutverk á sviði. Nú leikur hann aðal­hlutverkið í Hafinu sem verður frumsýnt annan í jólum, þar sem fjöl­skyldumál og kvóti koma við sögu. Að hafa verið við dauðans dyr þegar báturinn sökk mótaði sýn hans á lífið – og hafið.

Langlíf umræða
Langlíf umræða Þegar Hafið var skrifað var mikil umræða í sam­fé­lag­inu vegna hrær­inga sem tengd­ust kvót­anum, eins og í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við byrjuðum að æfa leikritið fyrir rúmum mánuði en ég fékk handritið fyrir löngu síðan,“ segir Þröstur Leó Gunnarsson en leikritið verður frumsýnt annan í jólum.

„Ég leik útgerðar­manninn Þórð sem er karl af gamla skólanum. Hann byrjaði með tvær hendur tómar í sjávar­þorpi og er búinn að byggja upp fyrir­tækið sitt. Síðan var farið að úthluta kvóta og litlu fyrir­tækin urðu undir og þau stóru keyptu þau upp eins og gerðist í raun og veru.

Reksturinn gengur ekki vel en Þórður hugsar um byggðar­lagið en börnin hans vilja að hann selji fyrir­tækið. Hann spyr þau þá hvort þau hafi talað við fólkið í þorpinu og útskýrt fyrir því hvers vegna þau vilja taka frá því lífs­björgina sem er þetta fyrirtæki. Þórður er harður í horn að taka. Þetta er ekkert auðveldur karakter þannig séð.“

Þröstur Leó ólst upp á Bíldudal og hefur verið mikið á sjó.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár