Bjarni slakar á aðhaldssamri fjármálastefnu Benedikts og kastar útgjaldaþakinu

Ný fjár­mála­stefna ber þess merki að stjórn­ar­flokk­arnir geti eða vilji ekki ráð­ast í var­an­lega tekju­öflun sem sam­svarar fyr­ir­hug­uðum útgjalda­vexti á kjör­tíma­bil­inu.

Bjarni slakar á aðhaldssamri fjármálastefnu Benedikts og kastar útgjaldaþakinu

Rík­is­sjóður verður rek­inn með miklu minni afgangi næstu fimm árin heldur en til stóð sam­kvæmt fjár­mála­stefnu fyrri rík­is­stjórnar. Þessi breyt­ing kemur skýrt fram í fjár­mála­stefnu sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, lagði fram á Alþingi í gær. Fjár­mála­stefnan, líkt og fjár­laga­frum­varp og stjórn­ar­sátt­máli nýrrar rík­is­stjórnar, ber þess merki að stjórn­ar­flokk­arnir hafi ekki getað komið sér saman um var­an­lega tekju­öflun sem sam­svarar fyr­ir­hug­uðum útgjalda­vexti á kjör­tíma­bil­inu. 

Umdeild regla sem birt­ist í fjár­mála­stefnu fyrri stjórnar, um þak á útgjöld hins opin­bera sem mið­að­ist við 41,5 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu, mun heyra sög­unni til. Að sama skapi verða skuldir hins opin­bera greiddar niður hægar en áður var ráð­gert.

Samkvæmt fjár­mála­stefnu Bene­dikts, sem sam­þykkt var á Alþingi í formi þings­á­lykt­unar þann 6. apríl síð­ast­lið­inn, átti heild­ar­af­koma hins opin­bera að nema 1,6 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu á árunum 2018 og 2019, lækka um 0,1 pró­sentu­stig árin 2020 og 2021 og vera 1,3 pró­sent árið 2022.

Afkoman er tals­vert minni í fjár­mála­stefn­unni sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar, lagði fram í gær. Þar er gert ráð fyrir að heild­ar­af­koman nái hámarki, 1,4 pró­sentum, á næsta ári en verði 1,2 pró­sent árið 2019, 1,1 pró­sent árið 2020 og 1 pró­sent árin 2021 og 2022. 

Afkomu­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar gefur til kynna veru­lega slökun á aðhaldi rík­is­fjár­mál­anna.  Slíkt gengur í ber­högg við varn­að­ar­orð Fjár­mála­ráðs, sér­fræð­inga­hóps á vegum stjórn­ar­ráðs­ins, sem fram komu í álits­gerð þess um fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar fyrr á árinu. Að sama skapi hefur pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans bent á að enn sé spenna í þjóð­ar­bú­inu og að slökun á aðhaldi rík­is­fjár­mála verði mætt með hertu aðhaldi pen­inga­mála, þ.e. hærri vöxtum en ella.

Benedikt Jóhann­es­sonfyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra

Fjár­mála­stefna Bene­dikts gerði ráð fyrir að „öllu óreglu­legu og ein­skiptis fjár­streymi í rík­is­sjóð [yrði] varið til að hraða enn frekar nið­ur­greiðslu skulda eða til lækk­unar á ófjár­mögn­uðum líf­eyr­is­skuld­bind­ingum í því skyni að treysta fjár­hags­stöðu rík­is­sjóðs og draga úr vaxta­kostn­aði“.

Ekkert slíkt kemur fram í fjár­mála­stefnu Bjarna, enda hefur ný rík­is­stjórn lýst því yfir að stefnt sé að því að nota eigna­tekjur úr banka­kerf­inu til að standa undir inn­viða­upp­bygg­ingu á kjör­tíma­bil­inu. 

Slakað á aðhald­inuBjarni Bene­dikts­son var for­sæt­is­ráð­herra en er nú fjár­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár