Glæný fiskiskip Samherja brenna svartolíu

Dæmi eru um að ný íslensk fiski­skip brenni brenni­steins­ríkri svartolíu við strendur Íslands. Sér­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun segir umhverf­is­vænni kosti í boði, en svartol­ían sé enn langódýrasta elds­neytið.

Glæný fiskiskip Samherja brenna svartolíu
For­stjór­inn Þor­steinn Már Bald­vins­son segir að skip Samherja sem nota svartolíu séu mjög eyðslu­grönn. Mynd: Haraldur Guðjónsson

Íslenski skipa­flot­inn veldur jafn mik­illi losun brenni­steins­dí­oxíðs og allur iðn­aður í land­inu, en brenni­steins­dí­oxíð verður meðal ann­ars til við brennslu svartolíu í skipum. Dæmi eru um að glæný íslensk fiski­skip brenni brenni­steins­ríkri svartolíu við strendur Íslands, en þar á meðal eru þrjú ný skip í eigu Samherja sem komu til lands­ins á þessu ári. Svart­olía er „langódýrasta“ elds­neytið, en Samherji hagn­að­ist um sam­tals 14,3 millj­arða króna í fyrra. 

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, segir í sam­tali við Stundina rétt að nýju skipin brenni svartolíu. Hins vegar séu til margar teg­undir af svartolíu og hana sé hægt að fá með mis­mun­andi brenni­steins­magni. „Það eina sem ég hef að segja varð­andi þessi skip okkar er að þau eru mjög eyðslu­grönn og eyða mjög lít­illi olíu. Það er það sem við horfum á og höfum verið að þróa okkur hvað það varðar.“ Þá segir hann fyr­ir­tækið hafa dregið veru­lega úr olíu­notkun á síð­ustu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár