Samfélagslegar lausnir á sjúkum leigumarkaði

Lengi hefur verið talað um neyð­ar­á­stand á leigu­mark­aði. Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað tölu­vert umfram tekjur síð­ast­liðin ár með þeim afleið­ingum að æ fleiri flytja út fyrir borg­ina, úr landi eða enda hrein­lega á göt­unni. Þá búa leigj­endur á Íslandi við afar tak­mörkuð rétt­indi sé tekið mið af nágranna­lönd­unum. Lausnin gæti falist í því að auka vægi óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga sem rekin eru á sam­fé­lags­legum for­sendum.

Mikil þörf
Mikil þörf Gríð­ar­legar fram­kvæmdir hafa verið við nýbygg­ingar í höf­uð­borg­inni síð­ast­liðin ár. Samt sem áður vantar ennþá 5000 íbúðir inn á mark­að­inn til þess að hann nái jafn­vægi. Mynd: Kristinn Magnússon

Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 75,1 pró­sent frá byrjun árs 2011 sam­kvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Á sama tíma­bili hafa laun almennt hækkað um 64 pró­sent. Þannig rennur sífellt hærra hlut­fall ráð­stöf­un­ar­tekna leigj­enda í hús­næð­is­kostnað. Þetta þýðir að æ fleiri þeirra tekju­lægstu eiga erfitt með að ná endum saman. Sumir bregða á það ráð að flytja út á land þar sem fast­eigna­verð er lægra eða ein­fald­lega úr landi eigi þeir þess kost. Þá eru dæmi um að fólk setj­ist að í tjöldum eða bílum líkt og rakið hefur verið í fréttum und­an­farið. Við þetta bæt­ist svo að ungt fólk er mun lengur í for­eldra­húsum en áður. Almennur skortur á íbúð­ar­hús­næði, hækk­andi fast­eigna­verð, aukin umsvif sér­hæfðra leigu­fé­laga og útleiga íbúða til ferða­manna eru á meðal helstu ástæðna þess neyð­ar­á­stands sem ríkir á íslenskum leigu­mark­aði, sam­kvæmt nið­ur­stöðum helstu grein­ing­ar­að­ila.

Þegar verka­manna­bú­staða­kerfið var lagt niður í kringum síð­ustu alda­mót fóru fimm …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár