„Það byltingarkenndasta sem karlar geta gert er að hlusta á konur“

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir ræðir við Michael Kimmel, fremsta karl­femínista heims sam­kvæmt Guardian, um hlut­verk karla í jafn­rétt­is­bar­átt­unni.

„Það byltingarkenndasta sem karlar geta gert er að hlusta á konur“
Ger­breyttur heimur Michael Kimmel segir heim­inn hafa breyst mikið á stuttum tíma. „Eina stund­ina teljum við að við séum Don Draper en í næstu andrá erum við að rök­ræða sal­erni fyrir trans­gender fólk.“

Michael Kimmel er „fremsti karl­femínisti heims“ sam­kvæmt fjöl­miðl­inum the Guardian. Hann er pró­fessor við félags- og kynja­fræði­deild­ina í Stony Brook Uni­versity í Banda­ríkj­unum, þar sem hann kom á lagg­irnar Fræði­stofnun um karla og karl­mennsku (Center For the Study of Men and Masculinities) árið 2013. Hann er höf­undur bókanna Angry White Men, Manhood in America og Guyland: The Perilous World Where Boys Become Men. Á ferli sínum hefur Kimmel haldið fyr­ir­lestra í yfir 300 háskólum og mennta­stofn­unum. Hann hefur unnið náið með jafn­rétt­is­ráð­herrum Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar í að þróa fræðslu fyrir karla og drengi. Hann er eft­ir­sóttur ráð­gjafi hjá fyr­ir­tækjum, sam­tökum og yfir­völdum um allan heim. Þórdís Elva Þor­valds­dóttir fékk það hlut­verk að taka við­tal við Michael Kimmel á ráð­stefnu Open Society í Prag 8. nóv­em­ber 2017.

 

Þórdís Elva: Við Íslend­ingar eigum okkur mál­tækið orð eru til alls fyrst. Á lífs­leið­inni heyra margir drengir og karlar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár