Þorgerður gagnrýndi Katrínu fyrir framkvæmdir sem hún studdi sjálf

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, greiddi sjálf atkvæði með stór­iðju á Bakka árið 2013 en skammar Katrínu Jak­obs­dóttur fyrir að vinstri­st­jórnin hafi ekki frekar sett meiri fjár­muni í mennta­kerfið.

Þorgerður gagnrýndi Katrínu fyrir framkvæmdir sem hún studdi sjálf

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, gagn­rýndi Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, harð­lega fyrir að hafa setið í rík­is­stjórn þegar ráð­ist var í fram­kvæmdir vegna kís­il­vers á Bakka og Vaðla­heið­ar­ganga á opnum fundi um mennta­mál í síð­ustu viku.

„Ef ég væri í rík­is­stjórn sem stæði frammi fyr­ir, á erf­iðum tím­um, að verja mennta­kerfið eða fara í fram­kvæmd­ir á Bakka eða fara í fram­kvæmd­ir á Vaðla­heið­ar­göng­um þá er ekki spurn­ing í mín­um huga hvað ég myndi velja, ekki spurn­ing,“ sagði Þor­gerður á fund­inum sem hald­inn var á vegum Kenn­ara­sam­bands Íslands í sam­starfi við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands. Voru þetta við­brögð Þor­gerðar við gagn­rýni Katrínar á aðhaldið í mennta­málum sem birt­ist í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2018 og í fjár­mála­á­ætlun frá­far­andi rík­is­stjórnar.

Gagnrýni Þor­gerðar á kís­il­ver á Bakka er athygl­is­verð í ljósi þess að Þor­gerður og Katrín greiddu báðar atkvæði með frum­varpi Stein­gríms J. Sig­fús­sonar um heim­ild til samn­inga um kís­il­ver á Bakka þann 28. mars 2013.

Í lög­unum fólst meðal ann­ars að veittir voru skatta­af­slættir og rík­is­styrkir sem talið var að næmi allt að 5 millj­örðum íslenskra króna. Nær allir þing­menn Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­ein­uð­ust um aðgerð­irnar, meðal ann­ars Katrín Jak­obs­dóttir og Þor­gerður Katrín. 

Þegar heim­ild til að fjár­magna gerð jarð­ganga undir Vaðla­heiði var sam­þykkt á Alþingi tæpu ári áður, þann 14. júní 2012, var Þor­gerður Katrín fjar­ver­andi, en Katrín greiddi atkvæði með.

Þor­gerður gerði athuga­semdir við útfærslu, ferli og aðferða­fræði Vaðla­heið­ar­máls­ins en vís­aði því þó alfarið á bug að hún væri á móti Vaðla­heið­ar­göngum. „Við erum sam­mála um að Vaðla­heið­ar­göng eru mik­il­væg sam­göngu­bót og góð fram­kvæmd til að efla sam­göngur á norð­an­verðu land­inu,“ sagði hún í svari við ræðu Jóns Bjarna­sonar á Alþingi þann 12. júní 2012. Hún vís­aði til álits Rík­is­á­byrgða­sjóðs um málið og tal­aði fyrir því að farið væri var­lega og fram­kvæmdin yrði ekki tekin fram yfir aðrar fram­kvæmdir á sam­göngu­á­ætlun. Um leið sagði hún: „Ég hef verið þeirrar skoð­unar að við megum ekki tala verk­efnið niður, við verðum líka að vara okkur á því. Ég und­ir­strika að mér finnst þetta mik­il­vægt verk­efni en við verðum líka að þora að tala um það í sam­hengi við aðrar fram­kvæmdir.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár