Sagði stúlku að móðir hennar væri á spítala og reyndi að fá hana upp í bíl til sín

Karl­maður reyndi að tæla telpu í fjórða bekk í Flata­skóla í Garðabæ inn í bíl til sín í morgun með því að kalla til hennar að mamma hennar væri á spít­ala. Lög­reglan skoðar málið.

Sagði stúlku að móðir hennar væri á spítala og reyndi að fá hana upp í bíl til sín
Flata­skóli Atvikið átti sér stað rétt hjá Flata­skóla í Garðabæ. Mynd: Garðabær

Karl­maður reyndi í morgun að lokka telpu í fjórða bekk inn í bíl til sín við Flata­skóla í Garðabæ. Hann mun hafa kallað til hennar, sagt að mamma hennar væri á spít­ala og að hún yrði að koma með honum. Lög­reglan rann­sakar nú málið. 

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í bréfi sem Edda Björg Sig­urð­ar­dóttir, skóla­stjóri Sjá­lands­skóla í Garðabæ, sendi for­eldrum nú síð­degis. Þá segir einnig að telpan hafi brugð­ist rétt við, hlaupið í skól­ann og látið vita. For­eldrar eru beðnir að ræða við börnin um málið. 

Bréf skólastjóra Sjálandsskóla í heild:

„Komið þið sæl.

Ég vil upp­lýsa ykkur kæru for­ráða­menn um að nú í morgun gerð­ist það við Flata­skóla við skóla­byrjun að lítil telpa, nem­andi í fjórða bekk, varð fyrir því að ókunnur maður kall­aði til hennar og reyndi að fá hana í bíl­inn til sín. Hann tjáði henni að mamma hennar væri á spít­ala og að stelpan ætti að koma með honum. Hún var að ganga á Smára­flöt­inni á leið sinni til skól­ans. Telpan brást hár­rétt við og kom hlaup­andi niður í skóla og lét vita. Málið var taf­ar­laust til­kynnt til lög­reglu sem er nú með það til rann­sóknar. Lög­reglan mun einnig verða með bíl á sveimi hér við helstu göngu­leiðir næstu daga. 

Við munum biðja umsjón­ar­kenn­ara að ræða við börnin í skól­anum varð­andi þetta mál. Það er mik­il­vægt að þið ræðið við börnin ykkar án þess að hræða þau um of. Góð regla er að segja börnum að ef ein­hver þeim nákom­inn lendir í slysi eða ein­hverju slíku að þá er það lög­regla í lög­reglu­bún­ing eða ein­hver sem þau þekkja vel sem til­kynnir málið og þau eigi aldrei að fara upp í bíl með ókunn­ugum. 

Með kærri kveðju,

Edda Björg Sig­urð­ar­dóttir

skóla­stjóri Sjá­lands­skóla“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár