Verður hún þarnæsti forseti Bandaríkjanna?

Illugi Jök­uls­son skrifar um Kamala Harris en einnig Kirsten Gilli­brand, Elizabeth Warren, Terry McAuliffe og fleiri von­góða Demókrata

Verður hún þarnæsti forseti Bandaríkjanna?
Kamala Harris gæti orðið for­seti Banda­ríkj­anna á eftir Mike Pence.

Nú þegar engin engin goðgá virð­ist að trúa því að Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna muni hrökkl­ast úr emb­ætti fyrr en síðar og Mike Pence taka við emb­ætti hans, þá eru Demókratar vestan hafs þegar farnir að velta fyrir sér hver þeirra verði sig­ur­strang­leg­astur í for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber 2020. 

Samkvæmt fréttum eru ýmsir von­góðir stjórn­mála­menn þegar byrj­aðir að leggja drög að fram­boði og fjöl­miðla­menn þekkja engin dæmi þess að svo margir hafi áður verið byrj­aðir að máta sig við for­seta­emb­ættið svo snemma.

Sumir eru meira að segja þegar byrj­aðir að safna fé fyrir fram­boð sitt, þótt ekki fari hátt ennþá.

Meðal þeirra sem á þess­ari stundu eru taldir lík­legir til að verða í fram­boði 2020 eru þessi hér:

Kamala Harris er fædd 1964 í Kali­forníu og hefur búið þar alla sína tíð. Móðir hennar er inn­flytj­andi frá Indlandi, læknir og stundar krabba­meins­rann­sóknir. Faðir hennar er ætt­aður frá Jamaíka. Harris nam hag­fræði, stjórn­mála­fræði og lög­fræði og fór ung að láta til sín taka í lög­gæslu­málum í Kali­forníu.

Árið 2010 var hún kosin dóms­mála­ráð­herra fylk­is­ins, þótti dug­mikil og rögg­söm og var end­ur­kjörin 2014. Í fyrra var hún svo kosin öld­unga­deild­ar­þing­maður Kali­forníu. Hún þykir aðsóps­mikil og hefur beitt sér heil­mikið gegn Trump for­seta. 

Elizabeth Warren

Kamala gifti sig 49 ára gömul og á ekki börn. Systir hennar Maya er stjórn­mála­skýr­andi hjá sjón­varps­stöð­inni MSNBC.

Önnur kona sem oft er nefnd sem hugs­an­legur for­seta­fram­bjóð­andi er Elizabeth Warren. Hún fædd­ist 1949 í Oklahoma, lærði lög og var pró­fessor í lög­fræði áður en hún fór út í póli­tík og var kosin í öld­unga­deild­ina fyrir Massachusetts  2012.

Warren hefur vakið mikla athygli fyrir skör­ungs­skap og rót­tækni (á amer­íska vísu) og margir Demókratar hefðu frekar vilja sjá hana etja kappi við Trump en Hillary Clinton. Óvíst er hvort hún hefur metnað til að leggja út í bar­áttu um for­seta­emb­ættið en sumir sem til þekkja full­yrða að hún muni láta slag standa í þetta sinn og bjóða sig fram.

Sumum finnst hún vera of vinstrisinnuð til að þor­andi sé að bjóða hana fram. En hún er alt­ént ein fárra fram­bjóð­enda sem ekki er hægt að efast um að hafi fyrst og fremst hug­sjónir í fyr­ir­rúmi.

Kirsten Gilli­brand

Í því sam­bandi er samt athygl­is­vert að hún kaus jafnan Repúblik­ana fram til árs­ins 1995 af því hún taldi að þeir styddu betur en Demókratar við frjálsan markað.

Warren gekk í hjóna­band ung að árum, eign­að­ist tvö börn og skildi síðan. Um 1980 gift­ist hún öðru sinni.

Þriðja konan sem oft er nefnd í sam­bandi við for­seta­fram­boð af hálfu Demókrata er Kirsten Gilli­brand.

Hún fædd­ist 1966 í New York, for­eldrar hennar eru vel stæðir lög­fræð­ingar og bæði í innsta hring Demókrata í fylk­inu. Faðir hennar hefur iðu­lega unnið fyrir sér sem hags­muna­gæslu­maður ýmissa fyr­ir­tækja - öðru nafni lobby­isti.

Gilli­brand gekk 2001 að eiga breskan fjár­mála­spek­úlant og eiga þau tvö börn.

Hún lærði lög og fór að starfa fyrir Hillary Clinton þegar hún bauð sig fram til öld­unga­deild­ar­innar fyrir New York um alda­mótin.

Terry McAuliffe

Árið 2006 var Gilli­brand kosin í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings en varð svo öld­unga­deild­ar­þing­maður þegar Hillary Clinton varð utan­rík­is­ráð­herra í stjórn Obama. Því starfi hefur hún gegnt síðan.

Gilli­brand þótti í upp­hafi fer­ils síns í hópi hægri sinn­uð­ustu stjórn­mála­manna Demókra­ta­flokks­ins en hefur færst til vinstri með árunum.

Þá er talið víst að Terry McAuliffe ali með sér vonir um for­seta­emb­ættið. Hann fædd­ist 1959 í New York-fylki, faðir hans var fast­eigna­sali og McAuliffe hóf korn­ungur feril sem alls­herjar athafna­maður - og með góðum árangri.

Sanders og Biden

Hann fékkst við allt mögu­legt og fór síðan að hafa afskipti af stjórn­málum sem Demókrati. Hann var kos­inn fylk­is­stjóri Virginíu 2013. McAuliffe þykir lit­ríkur og aðsóps­mik­ill og hafa þá sann­fær­ingu sem heppi­leg­ust er hverju sinni. Um þrí­tugt gekk hann að eiga dóttur við­skipta­fé­laga síns og eiga þau fimm börn.

Þá er Bernie Sanders aftur nefndur til sögu en hann mun ferð­ast víða um Banda­ríkin og safna fé.

Sanders verður orð­inn 79 ára þegar kosn­ing­arnar 2020 fara fram en lætur víst lít­inn bil­bug á sér finna enn.

John Delaney

Þá er talið að Joe Biden fyrrum vara­for­seti Obama ráði illa við for­seta­fýsn­ina. Hann verður orð­inn 78 ára þegar kosið verður.

Aðeins einn Demókrati hefur þó enn sem komið er lýst því afdrátt­ar­laust yfir að hann ætli að sækj­ast eftir for­seta­emb­ætt­inu.

Það er John Delaney, full­trú­ar­deild­ar­þing­maður frá Maryland, kvæntur fjög­urra barna faðir og áður kaup­sýslu­maður. Hann er ekki tal­inn eiga mikla mögu­leika, en hvað vitum við? Ekki var Trump tal­inn eiga mikla mögu­leika!

Hið eina sem telja má víst er að margir fleiri fram­bjóð­endur eiga eftir að koma við sögu áður en talið verður upp úr kjör­kössum í nóv­em­ber 2020.

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár