Höfuðkúpan mín brotnaði á föstudaginn var. Nei, ég meina ekki: Ég höfuðkúpubrotnaði á föstudaginn var, heldur að plasthöfuðkúpa – sparibaukur – sem ég á brotnaði á föstudaginn var. Ég fékk gesti í heimsókn og einn þeirra bað um að fá að skoða kúpuna. Ég hélt það nú. Gesturinn missti kúpuna í gólfið svo hún brotnaði. Það var ekkert stórmál. Síðar um kvöldið fórum við öll á dansleik og skemmtum okkur vel. En ég viðurkenni samt alveg að ég sakna kúpunnar. Mamma mín gaf mér hana fyrir nokkrum árum. Þá hafði ég um margra ára bil haldið upp á öskubakka sem er útskorin höfuðkúpa. Forljótur alveg hreint, en ég fékk hann einhvern tímann að gjöf og mér þótti vænt um hann. Hvað um það, mömmu fannst öskubakkinn svo ljótur að hún gaf mér sparibaukinn. Og smám saman fór mér að þykja eins vænt um sparibaukskúpuna og mér þótti áður um öskubakkakúpuna. Virkilega vænt. Svo þegar ég vaknaði ofurlítið þurr í munninum á laugardagsmorgun og brotið rifjaðist upp fyrir mér varð ég dálítið dapur yfir því. Helvítis kúpan var brotin. Og hún var þannig brotin að ef hún væri kúpa raunverulegrar manneskju mætti gera ráð fyrir því að heili téðrar manneskju hefði splundrast. Að téð manneskja hefði látist. Og á aldeilis hryllilegan hátt. Alla daga, endalaust deyr fólk á hryllilegan hátt. Kannski dey ég einn daginn á hryllilegan hátt. En um sinn virðist ég hólpinn, þótt höfuðkúpan mín hafi brotnað. Það er ókei, svo fremi sem ég höfuðkúpubrotna ekki, eða dey á einhvern annan hryllilegan – og jafnvel hryllilegri hátt. Rifna til dæmis í tvennt við það að fá loftstein í gegnum mig miðjan eða smitast af ástsýki með óhjákvæmilegu bráðadrepi í hjarta. Eða verð étinn af gæsum. Það skiptir ekki máli nákvæmlega hvernig. Hlutir eru bara hlutir, drasl bara drasl. Höfuðkúpur bara sparibaukar. Verum góð hvert við annað.

Höfuðkúpubrot
Verum góð, segir Kött Grá Pje.
Mest lesið

1
Hjónadjöflar
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Djöfla eftir Lars Norén, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.

2
Trump og Musk vilja nýjan Úkraínuforseta
„Það er kominn tími til að Zelensky fari frá,“ skrifaði Elon Musk á X, á sama tíma og Úkraínumenn segja Bandaríkin hjálpa Rússlandi í stríðinu.

3
Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar
Jón Gnarr ætlar að sitja áfram á Alþingi utan flokka en styðja ríkisstjórnina. Þingmenn stjórnarflokkanna eru nú 34 en voru 36 í upphafi kjörtímabilsins. Tveir þingmenn utan flokka styðja þó áfram stjórnina.

4
Lögreglan rannsakar ekki sundferð þingmanna
Engin kæra eða tilkynning hefur borist lögreglu vegna ferðar þingmannanna í Selárlaug og því verður málið ekki tekið til efnislegrar meðferðar hjá embættinu. Forstöðumaður sundlauga í Reykjavík segir svona tilvik ekki hafa komið upp um árabil.

5
„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“
Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust svara um hvort Eftirlitsstofnun EFTA muni draga málshöfðun gegn Íslandi til baka verði bókun 35 samþykkt á Alþingi. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagðist ekki vita hvað stofnunin myndi gera. Þingmennirnir gagnrýndu ráðherrana fyrir óskýr svör.

6
Þorgerður Katrín: Jón alltaf velkomin aftur
Jón Gnarr heldur áfram í flokknum þó hann segi skilið við þingflokkinn. Formaður Viðreisnar segir að honum sé fjálst að snúa aftur hvenær sem er.
Mest lesið í vikunni

1
Segir skýrt að það sé ekki heimilt að fara í Selárlaug eftir lokun
Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps hefur ekki kært innbrot í Selárlaug til lögreglu eftir að fimm þingmenn fóru þangað inn í leyfisleysi. Sveitarstjórinn segir það skýrt að það sé óheimilt að fara í laugina eftir lokun og þetta sé ekki eitthvað sem menn eiga að gera.

2
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps
Bandaríkin vilja rífa niður Alþjóðlega sakamáladómstólinn. Ísraelar líkja fyrrverandi dómara við dómstólinn, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels, við áróðursmeistara nasista. Hún varar við hættunni.

3
Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni
Forsætisráðherra Bretlands segist hafa fengið skýra staðfestingu á afskiptum Rússa þegar hann tók við embætti. Hann hyggst í dag hvetja þingmenn til að leita eftir nýju samkomulagi við Evrópusambandið og nánari tengslum við það.

4
Sólveig Anna: „Nú er það traust algjörlega horfið“
Formaður Eflingar segir traust á milli Eflingar og framkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífisins brostið eftir viðræður við VR. Hún segir framkvæmdastjórann hafa beitt klækjastjórnmálum.

5
Gerðu húsleit hjá þingkonu Demókrata
Ilhan Omar hefur áður sagt rannsókn yfirvalda á sér vera pólitíska árás. Þrjár vikur eru til þingkosninga í Bandaríkjunum, þar sem úrslitin ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta á þingi. Omar hefur gagnrýnt Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, harðlega, sem hefur svarað af hörku.

6
Stefán Ólafsson
Rétt og rangt um leigubremsu
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu setur þak á hækkanir leigu við hækkun vísitölu neysluverðs. Stefán Ólafsson segir það geta dregið úr verðbólgu og bætt stöðu leigjenda.
Mest lesið í mánuðinum

1
Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna
Tvö lögregluembætti hafa krafið þrjá viðburðarhaldara um samanlagt 47 milljónir vegna þriggja viðburða í sumar. Viðburðahaldarar eru hugsi vegna málsins og tveir hafa kært gjaldtöku lögreglu.

2
Reikna ellilífeyri rangt samkvæmt orðalagi laga
Ellilífeyrisgreiðslur hafa miðað við of lágt frítekjumark í nær áratug samkvæmt orðalagi laga. Milljarðar eru undir en Tryggingastofnun túlkar lögin út frá lögskýringargögnum. Skrifstofa Alþingis segir lögin ekki uppfylla kröfur og ráðuneytið hyggst skoða hvort þeim þurfi að breyta.

3
„Ég hef ekkert til að kvarta yfir“
Söru Margréti Bergmann var kippt út úr lífi þriggja barna sinna þegar hún lamaðist skyndilega frá toppi til táar. Endurhæfingu hennar miðar vel og hún nýtur litlu hlutanna í lífinu. „Ég get verið glöð og þakklát fyrir allt, jafnvel þó ég verði alltaf í þessum stól.“

4
Vilja að Katla fari á elliheimili
Heilbrigðisráðuneytið hefur þrýst á að Katla Guðnadóttir, 24 ára gömul, velji sér hjúkrunarheimili til að flytja á tímabundið. Formaður ÖBÍ segir slíkar innlagnir ungs fólks sjaldnast verða tímabundnar. Katla hefur verið ári lengur á Grensásdeild en heilbrigðisstarfsfólk taldi þurfa og vill flytja heim til sín.

5
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist
Wojciech Jarosz vann á Keflavíkurflugvelli en eftir örlagaríkt frí í Karíbahafinu sækir hann nú endurhæfingu á Grensásdeild í von um að geta staðið aftur upp einn daginn. Sjaldgæfur kvilli sem byrjendur á brimbrettum geta fengið olli lömun fyrir neðan mitti.

6
Starfsleyfi sex lækna felld niður eftir umfjöllun
Embætti landlæknis tók mál 13 lækna til skoðunar í kjölfar rannsóknar Heimildarinnar og erlendra miðla á læknum sem héldu starfsleyfi í einu landi eftir að hafa misst það í öðru. Sex starfsleyfi hafa verið felld niður og eitt takmarkað.
































Athugasemdir