Mitt mesta afrek. Dagbók frá Kaupmannahöfn XIV.

Illugi Jök­uls­son er ríg­mont­inn af hjóla­túr sem hann fór í frá Jónshúsi.

Mitt mesta afrek. Dagbók frá Kaupmannahöfn XIV.
Eins og sjá má var ég orð­inn svo aðfram­kom­inn úr hungri og þorsta eftir hjóla­t­úr­inn langa á app­el­sínugula hjól­inu að ég rauk beint í næstu búð og keypti mér jarð­ar­ber. Og var langt kom­inn með kass­ann áður en ég var einu sinni kom­inn út að hjól­inu.

Jæja. Að vinna sitt mesta lík­am­lega afrek 57 ára, 30 kílóum of þungur, eftir átta hjarta­þræð­ingar, búinn að fara í lið­þófa­að­gerðir á báðum hnjánum og nán­ast alveg æfinga­laus, það var ekki endi­lega það sem ég átti von á að mér tæk­ist.

Hjólaði rétta 100 kíló­metra, sleitu­laust (tvö 7 mín­útna hlé á kaffi­húsum), helm­ing leið­ar­innar í furðu köldum mót­vindi, tvo þriðju leið­ar­innar í ausandi rign­ingu og öngri regnkápu.

Og ekki láta neinn ljúga því að ykkur að það séu engar brekkur á leið­inni frá Kaup­manna­höfn norður á Hels­ingja­eyri. Þær eru bara ansi margar, og alveg jafn margar á leið­inni til baka.

Stundum má maður lík­lega leyfa sér að vera ánægður með sjálfan sig. Helvíti var þetta gott hjá mér!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók frá Kaupmannahöfn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár