Kærðir lögreglumenn sem fótbrutu mann verða áfram við störf

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur sent frá sér til­kynn­ingu um að tveir lög­reglu­menn sem sköðuð illa mann við hand­töku í Kópavogi verði áfram við störf. „Ég hef aldrei séð annað eins,“ sagði starfs­maður ham­borg­ara­staðar um hand­tök­una.

Kærðir lögreglumenn sem fótbrutu mann verða áfram við störf
Lög­reglu­maður Tveir lög­reglu­menn, karl og kona, hafa verið kærðir af hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir ofbeldi í hand­töku. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Pressphotos/Geirix

Þrátt fyrir að hafa verið kærðir fyrir lík­ams­árás á hendur manni við hand­töku, sem tví­fót­brotn­aði við aðfar­irnar, verða tveir lög­reglu­menn áfram við störf hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni. Þeir verða því ekki sendir í leyfi að svo stöddu. 

„Kærur á hendur lög­reglu­mönnum vegna meintra brota í starfi eru ávallt teknar alvar­lega og svo á einnig við hér. Lög­reglu­menn­irnir sem um ræðir eru áfram við störf, en frek­ari ráð­staf­anir Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gagn­vart þeim verða teknar með hlið­sjón af þeirri nið­ur­stöðu sem hlýst af rann­sókn emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara í þessu máli,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara rann­sakar nú málið. Hins vegar hefur eitt vitni í mál­inu þegar stigið fram. Freyr Jóhanns­son, vakt­stjóri á Ham­borg­ara­búll­unni við Dalveg í Kópavogi, lýsti grófu ofbeldi lög­reglu­mann­anna í sam­tali við Vísi.

Aðdrag­andi hand­tök­unnar var að tveir pólskir menn voru ölv­aðir og með læti við ham­borg­ara­stað­inn um kvöld­mat­ar­leyti. „Maðurinn streitt­ist mikið á móti þegar hann var hand­tek­inn og vinur hans sömu­leiðis, því hann byrj­aði að toga í mann­inn og lög­reglu­menn­ina. Þegar hann gerði það drógu lög­reglu­menn­irnir upp kylfu og ýttu hinum niður í jörð­ina og börðu hann með kylf­unni. Lög­reglu­mað­ur­inn ýtti þessum hand­tekna svo inn í bíl­inn, en þegar mað­ur­inn hélt áfram að streit­ast á móti byrj­aði lög­reglu­mað­ur­inn að lemja hann með kylf­unni af fullum krafti og lamdi bíl­hurð­inni ítrekað í sköfl­ung­inn á honum. Þetta var mjög harka­legt og gróft og ég hef aldrei séð annað eins.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár