Viktoría er fertug í dag: Hver var hinn óvænti forfaðir hennar?

Viktoría krón­prinsessa Svía er fer­tug í dag. Illugi Jök­uls­son segir sög­una af því franskur soldát varð upp­hafs­maður nýrrar kon­ungs­ættar í Svíaríki.

Viktoría er fertug í dag: Hver var hinn óvænti forfaðir hennar?
Berna­dotte horfir furðu lost­inn á afkom­anda sinn, hina fer­tugu prinsessu.

Í Svíþjóð er verið að halda upp á afmæli krón­prinsessunnar Viktoríu í dag. Hún er sem sagt fer­tug. 

Prívat og per­sónu­lega finnst mér kon­ung­dæmi nútil­dags vera ein­hver fárán­leg­asta, skrýtn­asta og raunar sið­laus­asta tíma­skekkja sem um getur.

Að skyn­samar þjóðir eins og Norð­ur­landa­þjóð­irnar skuli láta sér detta í hug að vera með kerfi þar sem fólk fæð­ist til - ja, kannski ekki valda lengur, en alla vega auð­æfa og ákveð­inna starfa, það er ein­fald­lega út í hött.

En látum það nú vera. 

Í þetta sinn ætl­aði ég nú bara að rekja ættir hennar Viktoríu.

Uppruni ættar hennar, Berna­dotte-ætt­ar­innar, er nefni­lega hel­stil óvenju­legur.

Árið 1751 dó út þáver­andi kon­ungs­ætt Sví­þjóðar. 

Þá völdu sænskir aðals­menn til kon­ungs Adólf nokkurn Friðrik sem var af ættum danskra og þýskra her­toga í Slésvík-Holstein, en lengra aftur í ættum mátti reyndar finna Gústaf Adólf Svíakóng.

Adólf Friðrik var lít­ill bógur og varð raunar fyrir val­inu einmitt þess vegna. Háað­als­menn í Svíþjóð fengu að ráða því sem þeir vildu ráða í gegnum hann.

Hann var sagður vænsti karl en hæfi­leika­laus með öllu, nema hann var víst flinkur í að búa til nef­tóks­dósir.

Og var hann svo um skeið hæst­laun­aði nef­tó­baks­dósa­gerð­ar­mað­ur­inn í öllum heim­inum. 

Þegar hann dó 1771 tók við ungur og frískur sonur hans að nafni Gústaf III við hásæt­inu.

Hann vildi ekki leyfa aðal­s­mönnum að ráða yfir sér og tók sér ein­ræð­is­völd.

Þeir létu sér það illa líka, enda hafði þokka­legt þing­ræði á þeirra tíma vísu verið farið að þró­ast á síð­ustu ára­tugum.

1792 var Gústaf III myrtur á grímu­balli í Stokk­hólmi, og var sú gjörð fræg.

Þótt ýmis­legt per­sónu­legt svekk­elsi hafi átt þátt í morð­inu stóðu aðals- og þing­ræð­is­menn þar í raun að baki. Þeir vildu snúa af braut kon­ungs­ein­ræðis. 

Þá tók við sonur hans Gústav IV Adolf.

Raunar var sagt að Gústaf IV hefði ekki sonur kon­ungs­ins, heldur hefði móðir hans - Soffía Magda­lena dóttir Friðriks V Dana­kóngs - haldið fram­hjá kóngi sínum með finnskum aðals­manni, sem getið hefði Gústaf IV. En hvað vitum við um það?

Það kom þá alt­ént vel á vondan því Gústaf IV var ómögu­legur kóngur og ein helsta bommerta hans var að missa Finnland úr höndum Svía til Rússa.

Gústaf IV var reyndar í alla staði svo hörmu­legur í starfi að loks missti hann kon­ungs­tign­ina líka.

Uppreisn var gerð gegn honum sum­arið 1809. Fyrir henni stóðu helst her­for­ingjar. Þeir settu á kon­ungs­stól Karl XIII, föð­ur­bróður Gústafs IV. Hann var orð­inn rosk­inn og átti ekki skil­getna syni á lífi svo ljóst var að þegar hann geispaði gol­unni myndi þurfa nýja ætt í hásætið.

Karl XIII þótti ágætur dans­ari og hafði áhuga á dul­rænum eftir. Þar með eru hans eig­in­leikar upp taldir.

Hálfu ári eftir að hann sett­ist á kon­ungs­stól fékk hann slag og var eftir það heilsu­veill maður og hall­aði sífellt undan fæti.

Aðals­menn­irnir sem réðu sáu að þeir yrðu að hafa hraðan á að finna arf­taka, því Karl gæti horfið yfir í dul­ar­heima hvenær sem væri.

Af ein­hverjum ástæðum völdu þeir danskan prins sem tók sér nafnið Karl Ágúst þegar hann var ætt­leiddur af Karli Svía­kóngi. Ekki er vitað þessi prins hafði sér til ágætis, nema langafi hans var Gullinló greifi, laun­sonur eins Dana­kóngs­ins og er nokkuð um hann rætt í Íslands­klukk­unni.

Karl Ágúst dó hins vegar af hjartaslagi aðeins hálfu ári eftir að hafa verið útnefndur krón­prins Svía 1809 og aftur stóð Karl XIII upp arf­taka­laus og varð sífellt hrör­legri til heils­unnar. 

Og nú gerð­ust óvæntir hlutir.

Suðrí Frakk­landi hafði verið gerð bylt­ing 1789. Kóngur var aflagður og háls­höggv­inn en brátt komst dát­inn Napóleon til valda og lýsti sig að end­ingu keis­ara.

Meðal helstu und­ir­for­ingja hans var Jean Berna­dotte. Hann var af borg­ara­legum ættum suðrí Pýrenea­fjöllum, faðir hans var minni­háttar lög­maður og Jean átti að feta í fót­spor hans en þá braust bylt­ingin út.

Berna­dotte gekk í her­inn og varð sem sagt einn af laut­inöntum Napól­e­ons.

Berna­dotte þótti glæsi­legur, sig­ur­sæll, lit­ríkur og heil­mik­ill karakter.

Hann var ævin­lega tryggur Napóleon, meðan hann þjón­aði í her hans, en per­sónu­lega gekk stundum nokkuð á milli þeirra. Napóleon vildi ekki að neinn skyggði á sig og stundum fannst honum hætta á að Berna­dotte gerði það.

Désiréekærasta Napól­e­ons, eig­in­kona Berna­dottes, drottn­ing Svía.

Hins vegar „arf­leiddi“ Napóleon Berna­dotte að kær­ustu sinni þegar hann varð leiður á henni, sú hét Désirée og var af auð­ugu kaup­mannskyni. Þau Berna­dotte og Désirée gengu í hjóna­band og urðu ástir þeirra góðar og einn áttu þau son sem Oscar hét.

Berna­dotte var að sjálf­sögðu frægur maður sem einn af helstu for­ingjum Napól­e­ons sem hafði bæði gert hann að mar­skálki og sæmt hann nafn­bót­inni prins.

Í evr­ópskum kónga­fjöl­skyldum var Berna­dotte samt lit­inn horn­auga sem þjónn „valda­ræn­ingj­ans“ Napól­e­ons. En í Svíþjóð hafði hann gott orð á sér af því hann hafði í ein­hverri styrj­öld­inni hand­samað hóp sænskra stríðs­fanga og þótti fara um þá mjúkum höndum.

Nú gerð­ist það, sem fyrr var grá greint, að Karl Ágúst krón­prins Svía dó og kóng­ur­inn Karl XIII átti ber­sýni­lega ekki langt eftir ólifað. Og Svíar litu í kringum sig eftir nýjum kóngi og eins og venju­lega hugs­uðu þeir fyrst og fremst um þýska her­toga og prinsa. Eina skil­yrðið var í raun og veru að við­kom­andi hefði ein­hverja hern­að­ar­reynslu því loft var lævi blandið í Evrópu og yrði svo áfram meðan Napóleon væri og héti.

Einn hirð­maður við sænsku hirð­ina steig þá mjög und­ar­legt og djarft skref. Hann hét Karl Otto Mörner og algjör­lega að eigin frum­kvæði, og án þess að nokkur viti í raun­inni hvers vegna, þá birti hann opin­ber­lega boð til Berna­dottes mar­skálks Frakka um að koma og ger­ast krón­prins yfir Svíum.

Þetta var nátt­úr­lega algjör­lega fárán­leg hug­mynd og þegar Mörner, sem hafði verið í útlöndum, kom loks aftur heim til Sví­þjóðar var hann umsvifa­laust hand­tek­inn fyrir til­tækið - sem þótti gróf móðgun við Svíþjóð.

Að bjóða ein­hverjum óupp­dregnum dáta úr Frakk­landi kon­ungs­krún­una - sem Mörner hafði heldur ekk­ert yfir að segja - ekki nema það þó!

Napóleon mun hafa farið að skelli­hlæja þegar hann heyrði þetta, og Berna­dotte vissi lík­lega ekki hvaðan á sig stóð veðrið, svo óvænt var þetta „boð“. Í raun­inni bjóst eng­inn við að staðið yrði við boðið, hvað þá að málið færi lengra.

En svo und­ar­lega brá við að í Svíþjóð fór fylgi við hug­mynd Mörners fljótt að vaxa.

Hvað var vit­laus­ara við að fá sem kóng lit­ríkan Frakka, þótt ekki væri fæddur aðals­maður, heldur en enn einn af þessum enda­lausu dauf­gerðu þýsku prinsum?

Og í ágúst 1810 sam­þykkti sænska rík­is­þingið að bjóða Berna­dotte krón­prinsa­tign.

Þeim manni, sem hafði átt að verða minni­háttar lög­fræð­ingur lengst syðst í Frakk­landi, stóð nú til boða kon­ungs­tign í norð­lægu landi sem hann hafði lengst af ævinnar varla vitað að væri til.

Svona getur margt skrýtið gerst.

En þessi franski soldát er sem sagt langa­langa­langa­langa­langafi afmæl­is­barns­ins Viktoríu.

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár