Af hverju eru svona fáir með hjálma? Dagbók frá Kaupmannahöfn VI.

Illugi Jök­uls­son hjólar um Kaup­manna­höfn og furðar sig á því hve fáir eru með hjálma.

Af hverju eru svona fáir með hjálma? Dagbók frá Kaupmannahöfn VI.
Ungur íslenskur piltur skoðar hjóla­menn­ingu Dana. Af hverju eru þær ekki með hjálm?

Það er ein­stak­lega gaman að hjóla um Kaup­manna­höfn. Það er eitt­hvað veru­lega sið­menntað við hvað Danir treysta mikið á hjólin sín.

Ein ábend­ing til Íslend­inga sem fara að hjóla hér um götur: Passið ykkur á hjóla­stíg­unum að hjóla á jöfnum hraða og halda sem beina­stri stefnu.

Ekki góna of mikið í kringum sig, því þá fer maður ósjálfrátt að sveigja svo­lítið til og frá á hjóla­braut­inni.

Það er allt í lagi í Reykja­vík þar sem fáir eru úti að hjóla.

En í Kaup­manna­höfn er alltaf ein­hver rétt á eftir manni á hjóla­braut­inni eða um það bil að smjúga fram úr.

Með því að sveigja jafn­vel bara svo­lítið til á braut­inni, þá veldur maður hættu.

Það hafa nokkrir hreytt í mig ónotum nú þegar þar sem ég er á ferð á app­el­sínugula hjól­inu, en ég er að læra!

En einu furða ég mig á.

Hér hjóla tug­þús­undir um á hverjum degi og ég efast um að meira en svona 3-5 pró­sent séu með hjálma.

Maður skyldi ætla að í háþró­uðu hjóla­sam­fé­lagi væru allir löngu komnir með hjálma ef þeir væru jafn gagn­legir og okkur er sagt.

Er kannski ekk­ert gagn í þeim? Af hverju nota svo fáir Dana hjálm?

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók frá Kaupmannahöfn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár