Heiðarlegi, lati og stuðandi þingmaðurinn

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er einn umdeild­asti mað­ur­inn á Alþingi vegna yfir­lýs­inga sinna. Brynjar kynnir oft eigin sann­fær­ingu í orði, en fylgir flokkslínu í fram­kvæmd. Hann þykir þó vera sann­gjarn og heið­ar­legur.

Heiðarlegi, lati og stuðandi þingmaðurinn
Brynjar Níelsson Hefur gaman af því að stuða fólk. Mynd: Pressphotos

Hvernig er Brynjar Níelsson?

Húmoristi? Jájá. Gam­al­dags íhaldskallpúngur? Ójá, í mörgu. Samt var hann fyrir nokkrum árum næstum geng­inn í VG.

Mjög reglu­lega tekst Brynjari Níels­syni að ýfa fjaðrir og reisa kryppu þeirra sem eru ósam­mála honum um sitt­hvað í póli­tík.

Okkur ent­ist ekki tölu­blaðið til að rekja það allt saman og ætlum ekki að gera það, en einkum eru það jafn­rétt­is­sinnar og fjöl­margir aðrir á vinstri væng stjórn­mál­anna sem láta mál­flutn­ing Brynjars fara í taug­arnar á sér.

Og enda oft ekki að ástæðu­lausu. Sumar skoð­anir Brynjars virka nefni­lega eins og alda­gam­all end­ur­ómur af klass­ískri vörn feðra­veld­is­ins fyrir stöðu sína. Aðrar eru í bezta falli lítt ígrund­aðar.

Á móti sakar Brynjar and­mæl­endur sína um póli­tískan rétt­trúnað, skin­helgi og að þykj­ast hafa sið­ferði­lega yfir­burði umfram aðra. Og ýmis­legt fleira.

Þessi átök hófust reyndar löngu áður en Brynjar hóf form­leg afskipti af stjórn­málum og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár