Eftirlaunalög Davíðs Oddssonar gera hann að langlaunahæsta fjömiðlamanni Íslands

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, er enn eitt árið tekju­hæsti fjöl­miðla­mað­ur­inn á Íslandi með 3,93 millj­ónum króna á mán­uði. Um 1100 þús­und krónur af laun­unum koma til vegna eft­ir­launa­laga Davíðs.

Eftirlaunalög Davíðs Oddssonar gera hann að langlaunahæsta fjömiðlamanni Íslands
Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins Umdeild eft­ir­launa­lög Davíðs gera hann enn eitt árið að launa­hæsta fjöl­miðla­manni lands­ins.

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, er enn eitt árið tekju­hæsti fjöl­miðla­maður lands­ins. Samkvæmt Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar sem kom út í morgun voru laun Davíð 3,93 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra.

Hluti tekna Davíðs í fyrra, um 1.100 þús­und krónur má rekja til eft­ir­launa­laga hans sem lög­fest voru árið 2003 en voru afnumin sex árum síðar. Lögin tóku til eft­ir­launa, meðal ann­ars, þing­manna og ráð­herra og var sér­stak­lega áskilið að laun fyrir rit­störf kæmu ekki til frá­dráttar eft­ir­launum.

Eft­ir­launa­lögin voru mjög umdeild þegar þau voru sett enda fólu þau í sér að æðstu ráða­menn fengu langtum hærri eft­ir­laun en áður þekkt­ist. Mönnum var heim­ilt að fara á eft­ir­laun við 55 ára aldur ef þeir höfðu langa starfs­reynslu. Þá gátu eft­ir­launa­þegar þegið launin allt að fjögur ár aftur í tím­ann, ef þeir kusu að þiggja þau ekki, þegar þeir öðlust rétt til þeirra.

Eft­ir­launa­frum­varp Davíðs var flutt af með­limum úr öllum þing­flokkum Alþingis árið 2003. Að umræðum loknum voru lögin sam­þykkt með öllum atkvæðum þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sóknar, þáver­andi stjórn­ar­flokka, auk eins atkvæðis úr röðum Sam­fylk­ing­ar­innar. Aðrir flokkar féllu frá stuðn­ingi við frum­varpið.

Þegar Davíð var spurður, í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í fyrra, hvort hann hefði sett lögin til að hækka eigin eft­ir­laun sagði hann svo ekki vera. „Þingið setti lögin og það var sér­stök þing­manna­nefnd sem lagði frum­varpið að lög­unum fram. Frum­varpið var borið fram af þing­mönnum úr öllum flokkum. Þrír þeirra voru úr stjórn­ar­and­stöð­unni og tveir úr stjórn­ar­flokk­unum þáver­andi.“ Davíð minnt­ist hins vegar ekki á að allir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar utan Guð­mundar Árna Stef­áns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, féllu frá stuðn­ingi við frum­varpið.

Þá sagði Davíð lögin hafa gagn­ast stjórn­ar­and­stöð­unni mest. „Þeir sem að svo nutu góðs af þessum lögum voru fyrst og fremst for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna sem fengu þegar í stað 50 pró­senta hækkun á sín laun en þeir sem nutu eft­ir­laun­anna sam­kvæmt lög­unum voru þeir ráð­herrar sem urðu for­sæt­is­ráð­herrar, fyrir utan mig, Geir H. Haarde, Þor­steinn Pálsson, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og Halldór heit­inn Ásgríms­son,“ sagði Davíð.

Samkvæmt lög­unum fær Davíð 80 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra í eft­ir­laun og er hlut­fall hans hærra en ann­arra for­sæt­is­ráð­herra vegna þess að hann sat lengur í stóli for­sæt­is­ráð­herra. Laun for­sæt­is­ráð­herra voru hækkuð umtals­vert með umdeildum úrskurði Kjara­ráðs á kjör­degi í fyrra, þann 29. októ­ber. Þau nema í dag um 1.490 þús­und krónum án þing­far­ar­kaups og eru því eft­ir­laun Davíðs í dag um 1.190 þús­und krónur á mán­uði.

Í öðru sæti á lista Frjálsar Versl­unar er Haraldur Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóri Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, en laun hans námu 2,6 millj­ónum króna á mán­uði. Í þriðja sæti er Björn Ingi Hrafns­son, útgef­andi Pressunnar og DV með 2,4 millj­ónir króna, en nýverið var til­kynnt að fjár­festar hefðu bakkað frá hluta­fjár­aukn­ingu í félag­inu vegna gríð­ar­legra van­skila. Kristín Þor­steins­dóttir, rit­stjóri 365, kemur þar á eftir með 1,46 millj­ónir. Fimmti hæst laun­aði fjöl­miðla­mað­ur­inn er Ómar R. Valdi­mars­son, frétta­maður Bloomberg með rúmar 1,4 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár