Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
Greiðslur fyrir kosn­ingar Donald Trump for­seti hefur boðað greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum. Stjórn­völd hans hafa einnig hafið útgreiðslur á 500 dala ávís­unum. Mynd: AFP

Ýmis óvenju­leg atvik ein­kenndu banda­rísk stjórn­mál síð­ustu viku. Fram­bjóð­andi sem veikt­ist af inflú­ensu varð fyrir barð­inu á til­hæfu­lausum orðrómi, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar með hvítu dufti bár­ust kosn­inga­yf­ir­völdum.

Frétta­stofan AFP hefur tekið saman nokkur eft­ir­tekt­ar­verð atvik úr kosn­inga­bar­átt­unni fyrir þing­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum 3. nóv­em­ber.

Inflúensan raunveruleg, orðrómurinn uppspuni

James Talarico, fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins til öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings í Texas, hefur vísað á bug sögu­sögnum um að hann hafi í leyni verið lagður inn á geð­deild í Ohio. Hann segir orðróm­inn vera „það klikk­að­asta sem ég hef nokkurn tíma heyrt“.

Talarico, sem er 37 ára, á í hnífjafnri kosn­inga­bar­áttu í Texas, þar sem Repúblikana­flokk­ur­inn hefur lengi haft yfir­hönd­ina. Hann veikt­ist af inflú­ensu og þurfti af þeim sökum að draga sig í hlé frá kosn­inga­við­burðum í um viku.

Áberandi hægri­menn héldu því hins vegar fram á sam­fé­lags­miðlum að Talarico hefði verið lagður inn …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Stórveldi að fremja sjálsvíg er held ég það sem lýsir Bandaríkjunum best í dag. Svipaðir hlutir hafa gerst fyrir ótal heimsveldi áður, en það sem er nýtt er hraðinn sem stafræn miðlun er að orsaka í ferlinu. Það er gróðavænlegt fyrir ákveðinn hóp að eyðileggja samfélag, og sá hópur hefur ánetjast sterkast dópi sem þekkist "peningar".
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár