Utanríkisráðherra Grænlands sagði í morgun að kröfur Bandaríkjanna um yfirráð yfir Grænlandi hefðu rofið „traustið“ í samskiptum við stórveldið og að endurvekja þyrfti það.
Mute Egede utanríkisráðherra sagði að það yrði „erfitt verkefni“ að endurheimta fullt traust.
„Þegar vinur hegðar sér svona — af virðingarleysi — þarf að endurvekja traustið“
Hann lét ummælin falla þegar þing Grænlands, sem nýtur sjálfstjórnar innan Danmerkur, átti að taka til umræðu öryggissamning við Bandaríkin sem veitir þeim rétt til að reisa tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi.
„Eitthvað hefur brostið,“ sagði Egede við danska ríkisútvarpið DR um þá spennu sem ríkt hefur undanfarna mánuði, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt því fram að Bandaríkin þyrftu að ráða yfir Grænlandi og útilokaði ekki að beita hervaldi til að ná yfirráðum þar.
„Traust hefur beðið alvarlegan hnekki. Þegar vinur hegðar sér svona — af virðingarleysi — þarf að endurvekja traustið,“ sagði Egede.
„Ég skil vel að …






















































Athugasemdir