Aðgerðalisti ríkisstjórnarinnar ekki fullfrágenginn

Að­gerðalisti rík­is­stjórn­ar­inn­ar sem ætl­að er að styðja við kjara­samn­inga á al­menn­um vinnu­mark­aði er enn ekki full­frá­geng­inn. Sama á við um sam­eig­in­lega yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­inn­ar og að­ila vinnu­mark­að­ar­ins.

Aðgerðalisti ríkisstjórnarinnar ekki fullfrágenginn
Í vinnslu Aðgerðarpakki ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum á almennum markaði er ekki frágenginn. Mynd: Golli

Aðgerðalisti ríkisstjórnarinnar sem ætlað er að styðja við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði er enn ekki fullfrágenginn. Sama á við um sameiginlega yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins. Þar segir að enn standi yfir samtal um endanlega útgáfu aðgerðalistans og yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Efni þeirra verði kynnt þegar þeirri vinnu lýkur.

Tilkynningin kemur í kjölfar þess að Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, greindi ítarlega frá fyrirhuguðum aðgerðum stjórnvalda í færslu á Facebook.

Dregið úr gjaldahækkunum og gefið í barnabætur

Eins og Heimildin fjallaði um í morgun sagði Vilhjálmur meðal annars að ríkið hygðist halda hækkunum krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs innan 2,5 prósenta árið 2027. Kílómetragjaldið yrði þó undanskilið.

Vilhjálmur sagði jafnframt að barnabætur og skerðingarmörk þeirra yrðu hækkuð, settar skorður við hækkunum húsaleigu og sérstakar vaxtabætur greiddar skuldsettum heimilum árið 2028 ef verðbólga verður yfir tilteknum mörkum í lok október á næsta ári.

Tilkynning forsætisráðuneytisins þýðir að endanlegt umfang og útfærsla þessara aðgerða liggur ekki enn fyrir, jafnvel þó að Vilhjálmur, sem samþykkti fyrir hönd stórs hluta launafólks að framlengja kjarasamninga þrátt fyrir forsendubrest, hafi fullyrt að ríkið ætlaði að ráðast í þessar aðgerðir.

Ekki er því ljóst hvort öll þau atriði sem Vilhjálmur greindi frá verði óbreytt í endanlegum aðgerðalista eða hvernig einstök fyrirheit verða orðuð.

Aðgerðarlisti lagður fyrir ríkisstjórn

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafði áður lagt aðgerðir stjórnvalda vegna kjarasamninganna fyrir ríkisstjórnina. Nú stendur hins vegar áfram yfir vinna með ASÍ, Samtökum atvinnulífsins og Sambandi íslenskra sveitarfélaga að sameiginlegri yfirlýsingu og endanlegri gerð aðgerðalistans.

Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa þegar náð samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að framlengja gildandi kjarasamninga. Enn ríkir hins vegar óvissa um samninga VR, Landssambands verzlunarmanna og Fagfélaganna.

NúlliðRíkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á að ríkisreksturinn verði réttu megin við núllið á næsta ári.

Ljóst má vera að aðgerðarpakkinn sem Vilhjálmur telur að ríkisstjórnin hafi boðið mun kosta fjármuni. Það að takmarka gjaldahækkanir við 2,5 prósent þýðir tekjurýrnun upp á 1,6 milljarða króna miðað við fjárlagafrumvarpið eins og það var lagt fram. Hækkun barnabóta og greiðsla sérstakra vaxtabóta, takist ekki að ná böndum á verðbólgu, þýða svo enn meiri útgjaldaaukningu.

Ríkisstjórnin lagði upp með að ríkisreksturinn myndi skila 4,7 milljarða króna afgangi á næsta ári. Lítið þarf því út af að bregða til að sá afgangur breytist í halla. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár