Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins

Fram­kvæmda­stjóri banda­rísks fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæk­is seg­ir það hafa greitt fyr­ir skipu­lagn­ingu funda Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Washingt­on. Ráð­gjafi flokks­ins skráði greiðsl­una sem kost­un kvöld­verð­ar. Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri flokks­ins tel­ur hins veg­ar að flokk­ur­inn hafi greitt all­an kostn­að sjálf­ur.

Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins
Í ferðalag Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, fór ásamt fylgdarliði til funda við bandarískt áhrifafólk í september. Það var önnur ferðin sem ráðgjafinn Zachary Freeman skipulagði fyrir flokkinn. Mynd: Garrett Hanson

Bandaríska fjárfestingarfyrirtækið New Iceland Advisors greiddi 18 þúsund dollara, jafnvirði um 2,2 milljóna króna á núverandi gengi, til fyrirtækis Zacharys Freeman vegna heimsóknar sendinefndar Sjálfstæðisflokksins til Washington árið 2025. 

Þetta kemur fram í umfjöllun Reykjavík Grapevine.

J. Heath Cardie, framkvæmdastjóri New Iceland Advisors, segir í samtali við Grapevine að greiðslan hafi staðið undir þóknun fyrir að skipuleggja fundi sendinefndarinnar með bandarískum þingmönnum og ráðuneytum. Hann lýsir þjónustunni sem hagsmunagæslu en segir hvorki einstaklingana né flokkinn hafa fengið peninga.

„Engir peningar fóru til þeirra persónulega. Við gáfum flokknum enga peninga,“ segir Cardie í samtali við Grapevine. „Bara hagsmunagæsla, svona virkar Washington.“

Í gögnum sem fyrirtæki Freemans, Imperial Independent Media, skilaði til bandarískra yfirvalda er greiðslunni hins vegar lýst sem kostun kvöldverðar fyrir sendinefnd flokksins. Samkvæmt Grapevine eru fundir ekki nefndir í þeirri færslu.

Ólíkar skýringar á greiðslunni

Greiðslan barst Imperial á tímabilinu 3.–7. apríl 2025, samkvæmt hálfsársskýrslu fyrirtækisins sem …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    ekki skemma sjáið hvað þau eru glöð og ánægð að einhverjir vilja gleðja þau.
    0
  • Óskar Þór Árnason skrifaði
    Því miður kemst ekki svona fróðleikur um íslensku pólitíkina nægilega vel til kjósenda.
    1
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Fyllsta ástæða er að óttast að ráðamenn Sjálfstæðisflokksins séu í einhverju pukri við hagsmunagæsluaðila á vegum bandarískra hergagnaframleiðenda. Af hverju hefur forysta Sjálfstæðisflokksins snúist gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið? Innan þess er stöðugt unnið við að styrkja mannréttindi og lýðræði sem samstarfsverkefni allra aðildarríkja. Einhverra hluta vegna var vísvitandi verið að ljúga að þjóðinni með vægast sagt mjög vafasömum fullyrðingum sem standast ekki. Ekkert aðildarríki innan þess hefur þurft að láta af hendi auðlindir sínar né fullveldi. En sú hætta er fyrir hendi sé verið að viðra sig með vafasömum aðilum sem tengjast hergagnaframleiðslu.
    3
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ætli Guðrún geri sér grein fyrir því að hún fór þarna til að ræða við fulltrúa sem eru undir regnhlíf hugmyndafræðilegara afla, sem telja hana ekki líffræðilega hæfa til að hafa kosningarétt og hvað þá fara með embætti?
    Ég get ekki sagt að ég sé jafn hissa að sjá karlana í hópnum.
    Hvernig tilfinning ætli það sé að ræða við einhvern sem telur þig líffræðilega óæðri?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár