Tæknimilljarðamæringurinn Elon Musk mun á ný gegna formlegu ráðgjafarhlutverki fyrir ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Hann verður annar tveggja stjórnenda rannsóknar á framtíð hernaðar, að sögn varnarmálaráðuneytisins.
Musk stýrði hagræðingardeild stjórnvalda (DOGE) þar til hann lét af störfum í maí 2025, eftir að opinberlega kastaðist í kekki milli hans og Trump.
Í ræðu í Quantico-herstöðinni sagði Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að „Project Meridian“ yrði „verkefni þar sem fremstu sérfræðingar Bandaríkjanna rannsaka framtíð hernaðar“.
„Við nýtum okkur einstakt forskot Bandaríkjanna sem andstæðingar okkar hafa ekki: frumkvöðla okkar, æðstu stjórnendur og tæknisérfræðinga,“ sagði Hegseth.
Musk mun stýra Project Meridian ásamt Palmer Luckey, 34 ára gömlum meðstofnanda varnartæknifyrirtækisins Anduril Industries, og Newt Gingrich, 83 ára gömlum repúblikana og fyrrverandi forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.
Musk studdi Trump og hjálpaði honum að komast aftur í Hvíta húsið, en síðar lentu þeir í opinberum deilum vegna útgjaldafrumvarps forsetans.
Síðar hóf Musk aftur að styrkja repúblikana, meðal annars …


















































Athugasemdir