Lögregla gerði á miðvikudag áhlaup á vélhjólagengi í Þýskalandi og þremur öðrum Evrópulöndum, að sögn lögregluyfirvalda. Fjölmiðlar greindu frá því að aðgerðin hefði beinst gegn Hells Angels.
Aðgerðirnar hófust snemma á miðvikudag og beindust að meira en 100 stöðum í Þýskalandi, Belgíu, Búlgaríu og Hollandi. Yfir 1.000 lögreglumenn tóku þátt, að sögn þýsku lögreglunnar.
„Verið er að framfylgja 14 handtökuskipunum og leggja hald á eignir að andvirði um 48,6 milljóna evra,“ sagði lögreglan í Duisburg í vesturhluta Þýskalands. Sú fjárhæð er jafnvirði 6,6 milljarða króna.
„Rannsóknirnar beinast að alls 71 grunuðum, þar á meðal þeim sem standa að peningaþvættisneti sem starfar í Þýskalandi og víðar í Evrópu, auk háttsettra félaga í vélhjólagengi,“ sagði í yfirlýsingu lögreglunnar.
Talskona lögreglunnar sagði við AFP að hún gæti „hvorki staðfest né neitað“ því hvaða samtök væru skotmark aðgerðanna. Dagblaðið Bild og aðrir fjölmiðlar sögðu að um Hells Angels væri að ræða.
Að sögn …


















































Athugasemdir