Yfirgefur gervigreindarfyrirtæki: „Þeir eru að leika sér með líf okkar“

Gervi­greind­ar­sér­fræð­ing­ur sem hef­ur unn­ið að þró­un gervi­greind­ar snýr baki við geir­ann og seg­ir fyr­ir­tæk­in leika sér með líf fólks: „Fólk­ið sem þró­ar gervi­greind trú­ir því í fullri al­vöru að hún gæti orð­ið okk­ur öll­um að bana fyr­ir lok ára­tug­ar­ins.“

Yfirgefur gervigreindarfyrirtæki: „Þeir eru að leika sér með líf okkar“

Gervigreindarsérfræðingur, sem yfirgaf OpenAI til að ganga til liðs við Anthropic, hefur ákveðið að yfirgefa gervigreindargeirann. Hann sakar bandarísku fyrirtækin um að „leika sér með líf okkar“ í kapphlaupinu um að þróa gervigreindarlíkön sem geta bætt sig sjálf.

Jacob Coxon, 27 ára, hefur undanfarin þrjú ár unnið að forþjálfun gervigreindarlíkana, fyrst hjá OpenAI og síðan hjá samkeppnisaðilanum Anthropic, þar sem hann hóf störf fyrr á þessu ári. Coxon taldi Anthropic fara varfærnar í sakirnar en OpenAI.

Forþjálfun er sá hluti þróunarferlisins þar sem gervigreindarlíkön vinna úr gríðarlegu magni gagna og tileinka sér mynstur og þekkingu úr þeim.

„Hvorugt fyrirtækið hegðar sér af ábyrgð. Þau keppast við að þróa sjálfbæra ofurgreind og veðja með líf okkar,“ sagði Coxon á þriðjudag.

„Fólkið sem þróar gervigreind trúir því í fullri alvöru að hún gæti orðið okkur öllum að bana fyrir lok áratugarins,“ skrifaði hann í færslu á X.

„Þetta er ekki markaðsbrella,“ …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þetta er óhugnanleg þróun, hver er svo verstur og hver er svo bestur þegar kemur að alheimsyfirráðum ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár