Reikna ellilífeyri rangt samkvæmt orðalagi laga

Elli­líf­eyr­is­greiðslur hafa miðað við of lágt frí­tekju­mark í nær ára­tug sam­kvæmt orða­lagi laga. Millj­arðar eru undir en Trygg­inga­stofnun túlkar lögin út frá lög­skýr­ing­ar­gögnum. Skrif­stofa Alþingis segir lögin ekki upp­fylla kröfur og ráðu­neytið hyggst skoða hvort þeim þurfi að breyta.

Reikna ellilífeyri rangt samkvæmt orðalagi laga
Trygg­inga­stofnun Fram­kvæmd Trygg­inga­stofn­unar hefur verið stað­fest af úrskurð­ar­nefndum.

Trygg­inga­stofnun reiknar elli­líf­eyr­is­greiðslur rangt sam­kvæmt texta laga um almanna­trygg­ingar en orða­lag þeirra virð­ist hafa breyst fyrir mis­tök árið 2017. Síðan þá hafa opin­berir aðilar varið útreikn­inga stofn­un­ar­innar þar sem aug­ljós­lega hafi ætl­unin ekki verið að breyta fram­kvæmd­inni.

Málið varðar greiðslur Trygg­inga­stofn­unar á elli­líf­eyri en við útreikn­ing fulls elli­líf­eyris hafa líf­eyr­is­þegar tvö frí­tekju­mörk. Annars vegar nemur almennt frí­tekju­mark 720 þús­und krónum á ári en hins vegar er einnig sér­stakt frí­tekju­mark vegna atvinnu­tekna sem nemur 2,4 millj­ónum króna á ári.

Í lögum um almanna­trygg­ingar var til árs­ins 2017 sér­stak­lega tekið fram að greiðslur úr atvinnu­tengdum skyldu­bundnum líf­eyr­is­sjóðum teld­ust ekki vera atvinnu­tekjur í skiln­ingi lag­anna. Þær falli því ekki undir sér­staka frí­tekju­markið.

Við breyt­ingar á lög­unum árið 2017 féll það orða­lag hins vegar út og því ekk­ert í lög­unum sem segir að 2,4 milljón króna frí­tekju­mark eigi ekki að gilda um greiðslur úr líf­eyr­is­sjóð­unum.

Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, sem sat …

Kjósa
56
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Eftir lestur hér er maður enn að hugsa hvað er starf alþingismanna ? Ekki að vinna fyrir okkur hina ! Alveg ljóst að einhver þarf að segja okkur hinum hvernig svona aulavinnubrögð eru búinn að ganga í mörg ár ?
    6
    • Guðjón Jensson skrifaði
      Alþingi Íslendinga er þrasgjarnasta þing veraldar. Þar sitja einhverjir þeir alverstu þverhausar sem finnast norðan Alpafjalla sem telja sitt helsta hlutverk að þrasa sem mest meðan þeir eiga sæti á þingi.
      0
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Þá er augljóst að leiðrétta þetta og borga fólki vangreiddan lífeyri fyrir þann tíma sem lögin gilda. Ef og þegar lögunum verður breytt getur það auðvitað breyst. En þá þarf líka að spyrja hvort sá hluti greiðslna lífeyrissjóða sem hljóta að reiknast sem fjármagnstekjur, verði þá ekki skattlagður sem slíkur.
    5
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Ætli hafi verið látið reyna á þessa túlkun fyrir dómstólum? Lögskýringargögn hafa ekki lagagildi sem slík þó þau geti haft að geyma vísbendingar um túlkun. Samkvæmt viðurkenndum lögskýringarreglum eiga lögskýringargögn ekki að geta haggað merkingu sjálfs lagatextans ef ósamræmi er þar á milli, a.m.k. ekki ef sá lagatexti er nægilega skýr og ótvíræður.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár