TikTok tískunnar: Hratt, ódýrt og ávanabindandi sölukerfi

„Ég vil ekki að þeir kæri mig ef þeir fá cancer í fram­tíð­inni og láti eins og það sé mér að kenna,“ seg­ir ís­lensk kona um leið og hún sýn­ir vör­urn­ar sem hún keypti á Shein. Kín­verska of­ur­hrað­tísku­hús­ið Shein hef­ur tek­ist að byggja upp sterk tengsl við not­end­ur TikT­ok, sem geta styrkt fé­lags­lega stöðu sína með því að kynna vör­ur fyr­ir­tæk­is­ins. Á sama tíma er fyr­ir­tæk­ið sak­að um ávana­bindna­di hönn­un og leikja­fræði sem ýt­ir und­ir hvat­vísi í kaup­um.

TikTok tískunnar: Hratt, ódýrt og ávanabindandi sölukerfi

Back to school Shein haul,“ segir íslensk stúlka á TikTok og dregur sautján nýjar flíkur upp úr pokanum. Shein er svokallað ofurhraðtískufyrirtæki sem byggir veldi sitt á hræódýrum tískuvörum.

Stelpur: Opnum pakkana

Þegar netnotkun jókst í heimsfaraldrinum sá kínverska netverslunin Shein sóknarfæri. Fyrirtækið lagði áherslu á samstarf við smærri áhrifavalda og almenna notendur samfélagsmiðla sem kynntu vörur gegn fríum vörum eða greiðslu. Aðferðin virkaði. Shein byggði hratt upp stóran og tryggan viðskiptahóp í Bandaríkjunum og Evrópa fylgdi í kjölfarið.

Velgengni Shein helst í hendur við vinsældir TikTok á meðal ungs fólks, þar sem svokölluð „haul“ myndbönd eru á meðal þess efnis sem fær mest áhorf. Samkvæmt HastagRadar hafa 5,4 milljónir myndbanda birst á TikTok undir merkjum #haul og fengið yfir 59,4 milljarða áhorfa. Fleiri myllumerki eru í notkun fyrir sambærileg myndbönd, sem snúast um að notendur sýni fylgjendum sínum hvað þeir hafa verið að kaupa.

Shein trónir á toppnum yfir …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“
5
StjórnmálBandaríki Trumps

Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðg­un við Ís­lend­inga“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir færslu Don­ald Trump, þar sem Ís­land var sýnt und­ir banda­ríska fán­an­um, al­gjör­lega óvið­eig­andi. Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra seg­ir und­ir­tón færsl­unn­ar fá­rán­leg­an og hana móðg­un við Ís­lend­inga, Kan­ada­menn og Græn­lend­inga. Banda­ríski sendi­herr­ann var kall­að­ur á fund vegna máls­ins.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár