„Lífið snýst ekki bara um frí“

Erik Jen­sen seldi Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga slát­ur­hús­ið sitt í fyrra. Fjöl­skyld­an vann frá morgni til kvölds, sjö daga vik­unn­ar, og því mik­il við­brigði að selja fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­ið og vörumerki þess, B. Jen­sen. „Það er skrít­ið að sjá ekki nafn­ið sitt leng­ur,“ seg­ir Erik.

„Lífið snýst ekki bara um frí“

„Ég veit ekki um neinn sem hefur dáið úr vinnu,“ segir Erik Jensen, fyrrum eigandi B. Jensen, sem er í 40. sæti Hátekjulista Heimildarinnar í ár og er sá þriðji tekjuhæsti á Akureyri.

Kaupfélag Skagfirðinga keypti B. Jensen í fyrra og færði reksturinn inn í dótturfélag sitt, Kjarnafæði-Norðlenska. Með kaupunum eru bæði stórgripasláturhúsin í Eyjafirði komin í hendur Kaupfélagsins.

B. Jensen var fjölskyldufyrirtæki, stofnað árið 1968 af hjónunum Benny Albert Jensen og Jónínu Sigurbjörgu Guðjónsdóttur. Erik, sonur þeirra hjóna, og eiginkona hans, Ingibjörg Stella Bjarnadóttir, ráku fyrirtækið ásamt börnum sínum þar til í fyrra. Reksturinn er við Lónsbakka í Hörgársveit, þar sem hann hefur verið alla tíð, og inniheldur sláturhús, kjötvinnslu og verslun á staðnum.

„Við erum bara að setjast í helgan stein,“ segir Erik, en hann var sjö ára gamall þegar foreldrar hans stofnuðu reksturinn. „Auðvitað er rosa sárt að skilja við svona. En það kemur bara eitt tækifæri …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár