Vegagerðin segir blátt skilti vara við aðstæðum

Vega­gerðin segir að hún hafi aukið merk­ingar eftir banaslys árið 2007. Rann­sókn­ar­nefnd sagði merk­ingu um hættu­lega beygju ábóta­vant. Þá merk­ingu vantar enn, en Vega­gerðin telur blátt skilti vara við aðstæðum.

Vegagerðin segir blátt skilti vara við aðstæðum
Skilta­merk­ingar Hér má sjá merk­ingar á veg­kafl­anum. Mynd: Golli

„Eftir banaslysið árið 2007 voru settar upp auknar merk­ingar eins og rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa hafði lagt til,“ segir í svari Vega­gerð­ar­innar við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar vegna skorts á beygju­merk­ingu á Krýsu­vík­ur­veg­inum þar sem banaslys ung­menna varð aðfara­nótt mánu­dags.

Heim­ildin greindi frá því að annað umferð­ar­slys hefði orðið á nákvæm­lega sama veg­kafla á Krýsu­vík­ur­veg­inum árið 2007. Þá lést vél­hjóla­maður sem ók á miklum hraða. Sá lést einnig þegar hann end­aði á steini sem er utan vegar um mið­bik beygj­unnar.

Segja blátt skilti varar við varasömum aðstæðum

Í nið­ur­stöðu Rann­sókn­ar­nefndar umferð­ar­slysa (RNU) sagði að merk­ingum um hættu­lega beygju hefði verið ábóta­vant auk þess sem það þyrfti að lækka hámarks­hraða á svæð­inu. Engar merk­ingar er að finna um beygj­una enn í dag, en öðrum fyr­ir­mælum var fylgt eftir sam­kvæmt til­mælum RNU, auk þess sem …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það sem er líka hættulegt við þessa begju er að í aðragandanum að henni er maður á leiðinni upp aflíðandi brekku og ef maður er á mjög mikilli ferð þá fer maður nánast á flug þegar meður kemur upp á brekkubrúnina og missir allt grip við vegin. Það er ekki einu sinni víst að vængir sem settir eru á afturenda bíla til þess að halda þeim klestum á götunni dugi til.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár